Bleika slaufan
Takk fyrir
frábærar
viðtökur!
Takk fyrir
frábærar
viðtökur!
Uppboð Bleiku slaufunnar hefst 23. október!
Uppboð til styrktar Bleiku slaufunni
Frábærir listamenn hönnuðu stuttermaboli sem boðnir voru upp til styrktar Bleiku slaufunni. Hönnun listamannanna er innblásin af orðum Frú Vigdísar Finnbogadóttur sem hún lét falla í kosningabaráttunni þegar hún var spurð hvort það myndi há henni í embætti að vera aðeins með eitt brjóst. Því svaraði Vigdis með orðunum „Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti”.
Bleika slaufan 2024
Bleika slaufan í ár er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Kransinn samanstendur af vafningum sem vefjast um hvern annan og tákna þannig þá umhyggju og stuðning sem við njótum flest á erfiðum tímum. Styrkurinn felst í samstöðu okkar - saman erum við sterkari.
Reynslusögur
„Reynslusögur“ er greinasafn Krabbameinsfélagsins sem miðlar reynslusögum einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Viðtöl við fólk sem er tilbúið að stíga fram, segja sína sögu með það að leiðarljósi að aðstoða aðra í sömu sporum. Einlægar og upplýsandi frásagnir um hvernig er að ganga í gegnum krabbameinsmeðferðir og mikilvægi vinahópa og aðstandenda í því ferli.
Fræðsla fyrir aðstandendur
Aðstandendur eru ómetanlegir í alvarlegum veikindum. Upplýsingar og hagnýt ráð geta komið að gagni fyrir nána aðstandendur, vini, kunningja og vinnufélaga fólks með krabbamein.
Vinir slaufunnar
Bleikar fréttir
Dagatal með 12 flottum konum til styrktar Bleiku slaufunni
12 konur stigu langt út fyrir þægindarammann til að styrkja mikilvægt málefni: Bleiku slaufuna og baráttuna gegn krabbameinum hjá konum. 12 konur sem hafa allar sjálfar reynslu af því hafa fengið krabbamein, eru með krabbamein eða hafa farið í áhættuminnkandi aðgerðir vegna stóraukinnar hættu á að greinast með krabbamein.
Ómetanlegt framlag Central Iceland til Bleiku slaufunnar
Hannar þú Bleiku slaufuna 2025?
Þjóðin tók Bleiku slaufunni opnum örmum
Stökkbreytt DNA verður að tónlist
Bleika slaufan: Um átakið 2024
Hönnuður Bleiku slaufunnar í ár er Sigríður Soffía Níelsdóttir
Sigga Soffía er danshöfundur í grunninn og þekktust fyrir flugeldasýningar og blómlistaverk en hún hannar undir nafninu Eldblóm.
Vissir þú að ...
- 0123456789012345678901234567890123456789
er árlegur meðalfjöldi þeirra skipta sem ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita stuðning og ráðgjöf?
- 012345678901234567890123456789
er árlegur meðalfjöldi þeirra kvenna sem greindust með krabbamein hérlendis árin 2018 - 2022?
- 012345678901234567890123456789
milljónir voru veittar úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 58 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2024?
Sjónvarpsauglýsing Bleiku slaufunnar 2024
Skráðu þig í Vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar
Stöndum saman og virkjum vináttuna! Þátttaka kvenna á Íslandi í skimun fyrir krabbameinum hefur minnkað síðustu ár og hvetjum við ykkur til að mæta í skimun. Eitt er víst og það er að samstöðukraftur kvenna er magnaður. Það sýna vinkvennahópar sem halda hópinn, jafnvel svo áratugum skiptir, í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning á erfiðum stundum og hvatningu þegar á þarf að halda
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.