Beint í efni
Regína

Finnst skipta rosa­lega miklu máli að tala um krabba­mein

,,Mér finnst skipta rosalega miklu máli að tala um krabbamein. Við eigum að hvetja vinkonur, systur, mæður, ömmur og öll sem eru með brjóst að fara í skimun” segir Regína Björk Jónsdóttir

Regínu finnst mikilvægt að tala um krabbamein. Hún greindist með brjóstakrabbamein í skærbleikum október, eins og hún lýsir því sjálf. Hún átti bókaðan tíma hjá lækni á 20 ára afmæli sonar síns sem hún fékk að færa um dag því hún vildi ekki skyggja á daginn, viss um að hún væri ekki að fá sérlega góðar fréttir.

,,Mér finnst skipta rosalega miklu máli að tala um krabbamein. Við eigum að hvetja vinkonur, systur, mæður, ömmur og öll sem eru með brjóst að fara í skimun”.

Þessi afstaða hennar varð til þess að ein vinkona hennar fór heim og þreifaði sín brjóst þar sem hún fann hnút. Hún komast að í krabbameinsmeðferð í tæka tíð og er á góðum batavegi.

,,Þannig að það skiptir öllu máli að halda þessu samtali opnu, tala um þetta og hvetja alla til þess að fara í skimun” segir hún með áherslu.

Í sínu ferli fannst henni frábært að hitta aðrar konur sem höfðu sigrast á krabbameininu, taka smá spjall og átta sig á hve það er frábært líf eftir krabbamein. Hún segir eitthvað fallegt tengja þær saman sem hafa gengið í gegnum þessa lífsreynslu og að það hafi gefið henni mikið.

Í framhaldinu hafa hún farið að meta allt upp á nýtt, að þroskinn fylgir þjáningunni. Finnst ótrúlegt hvað hún hafi verið fljót að breytast eftir að hún greindist.

,,Allt í einu skipti umferð engu máli, nú er ég bara þakklát fyrir að fá að vera í umferðinni.

Það breytast einhvern veginn allar áherslur hjá manni og já ég er allavega ennþá hangandi þar”.

Það sem hún tekur mest út úr þessu ferli eru klappstýrurnar í hennar lífi. Hún segist alltaf hafa verið rík af fjölskyldu og átt hrúgu af vinum en hafi aldrei gert sér grein fyrir hversu heppin hún er með þetta fólk í kringum sig og í rauninni hversu elskuð hún er.

,,Í dag er ég krabbameinslaus og var það í rauninni frá því ég fór í uppskurð. Ég er búin að fara í aðgerð, búin með lyf og ég er búin með geisla. Nú er ég í hinni stórskemmtilegu andhormónameðferð og verð í henni næsta áratuginn, þannig að það má búast við góðu partýi”.