Sala Bleiku slaufunnar hefst 1. október
Sala Bleiku slaufunnar hefst þriðjudaginn 1. október.
Allur ágóði Bleiku slaufunnar rennur til fjölbreyttar starfsemi Krabbameinsfélagsins sem byggir alfarið á styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Fyrir ágóðann getur Krabbameinsfélagið meðal annars verið til staðar fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur með ókeypis ráðgjöf og stuðning, sinnt öflugu fræðslu- og forvarnarstarfi og fjölbreyttu vísindastarfi.