Beint í efni
Sigga Soffía 1

Bleika slauf­an 2024

Hönnuður Bleiku slaufunnar í ár er Sigríður Soffía Níelsdóttir. Sigga Soffía er danshöfundur í grunninn og þekktust fyrir flugeldasýningar og blómlistaverk en hún hannar undir nafninu Eldblóm.

Hún er margverðlaunaður listamaður og flakkar óhikað milli listforma. Líkt og klifurplantan sem teygir anga sína víða teygir hönnun hennar sig allt frá dansi yfir í vöruhönnun með anga yfir í mat, flugeldasýningar, ljóðlist og nú skartgripi.

Bleika slaufan 2024
Sparislaufan 2024
Sparislaufan 2024 kassi

Slaufan í ár er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Sparislaufan í ár er gullhúðað, rósagyllt koparhálsmen í samlitri keðju. Hálsmenið er einstaklega glæsilegur gripur, stílhreinn en um leið djarfur. Hálsmenið kemur í afar fallegum gjafaumbúðum og er framleitt í takmörkuðu magni.

Frosið augnablik fangað

Slaufan í ár er þrjú eldblóm sem mynda skínandi blómakrans sem lítur út fyrir að hafa verið dýft ofan í fljótandi málm. „Allt tekur enda - ekkert er varanlegt“. Augnablikið þegar blómin springa út er ákveðinn hápunktur en mörgu þarf að huga að til að plantan blómstri. Að jafna sig eftir veikindi er svipað - og því meira sem við hlúum að fólkinu okkar eftir meðferð - því líklegra er að það blómstri aftur. Aðstandendur, ókunnugir sem bjóða góðan daginn, þeir sem að styðja við, peppa og segja þér að gefast ekki upp og trúa á þig hafa meiri áhrif en margan grunar.

„ Fegurðin í hversdagsleikanum, fáir vita að flugeldar voru upphaflega hannaðir eftir blómum. Þessi blóm sem prýða slaufuna eru Eldblóm - hægt er að sjá töfra í hversdagsleikanum og hægfara flugeldasýningar í blómabeðunum. Metaláferðin minnir á flugeldana en blómin skjótast upp og springa út: flugeldar springa út á himnum á 4 sekúndum en blómið við jörðina á 4 mánuðum”.

„Fyrir mér er slaufan næla sem er hönnuð eins og flugeldasýning þar sem flugeldar eru sprengdir upp í ákveðinni röð til að mynda ákveðna mynd eða blóm sem springa út. Í slaufunni frystum við augnablikið, líkt og flugeldasýningu í hápunkti“. 

Sigga Soffía x Bleika slaufan

Sigga Soffía hefur áður verið í samstarfi við Krabbameinsfélagið í Bleiku slaufunni. Sýningin hennar „Til hamingju með að vera mannleg” var t.d. hluti af opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 2023, einnig hefur hún framleitt Bleika blómakassa til styrktar Krabbameinsfélaginu í Bleiku slaufunni og við ótrúlega fallegt blómabeð hennar í Hallargarðinum í Reykjavík hvatti hún fólk til að styrkja félagið.  

„Þegar mér bauðst að hanna Bleiku slaufuna var það ótrúlega skemmtilegt framhald af samstarfinu við Krabbameinsfélagið“ segir Sigga Soffía. „Það er líka alltaf gaman að fá áskorun um að gera eitthvað sem maður hefur ekki gert áður. Ég fékk strax fullt af hugmyndum bæði tengt texta og einhverju svona sjónrænu til að sameina flugelda og blóm og reyna þannig að ná kjarnanum úr Eldblómi inn í þetta verkefni. Verkefnið snertir mig auðvitað persónulega, ég greindist með brjóstakrabbamein árið 2020 og þurfti að fara í lyfja- og geislameðferð og aðgerð. Hef því sjálf miklar og sterkar tilfinningar tengdar þessu verkefni.“ „Ég þekki af eigin raun hversu mikilvægt það er að hafa baklandið og félag eins og Krabbameinsfélagið til styðja við mann í ferlinu öllu og ekki síður eftir að meðferð lýkur.

Félagið gaf mér leiðarvísi í þeim nýja veruleika sem ég þurfti að fást við“. „Mér fannst mér bera skylda til að bera þennan boðskap áfram og þakka fyrir þann mikilvæga stuðning sem ég hef fengið. Ég er svo þakklát fyrir að mér hafi verið bent á að leita til Krabbameinsfélagsins því ég hélt að ég væri hreinlega eina unga konan að greinast með krabbamein en það er alls ekki þannig – það er svo gott að geta fengið strax einhvern leiðarvísi“. 

Sigga Soffía 2
Sigga Soffía 4
Eldblóm

Kaupum Bleiku slaufuna – sala hefst 1. október

Bleika slaufan verður í sölu frá 1. til 25. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, í Mebu skartgripaverslun  í Kringlunni og Smáralind, og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt. 

Við hvetjum ykkur til að fylgjast með frumlegum verkefnum Siggu Soffíu og Eldblóma á insta: eldblom.studios og www.eldblom.com

Nánar um hönnuðinn

Sigga Soffía starfaði sem dansari frá útskrift úr LHÍ í leikhúsum hérlendis og erlendis. Eldblóm skoða hvernig hægt er að rækta flugelda frekar en að sprengja, gera ilm og matvöru úr náttúrulegum flugeldum. Nýverið gaf hún út sína fyrstu ljóðabók, Til hamingju með að vera mannleg og leiksýningu á stóra sviði Þjóðleikhússins í kjölfarið. Ljóðabókin hlaut tilnefningu til Maístjörnunnar og leiksýningin tilnefningu sem besta leikrit ársins á Grímunni. Hún var kosin bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 og hlaut Bjartsýnisverðlaunin 2022, menningarverðlaun veitt af Forseta Íslands.