Guðmundur Pálsson 31. maí 2019 : Tóbakslausi dagurinn er í dag

Í dag er tóbakslausi dagurinn þar sem áhersla er lögð á tengsl tóbaks og lungnasjúkdóma.

Guðlaug B. Guðjónsdóttir Krabbameinsf. höfuðb.sv. 29. maí 2019 : „Nýtt líf án tóbaks”

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur látið útbúa stutt fræðslumyndbönd „Nýtt líf án tóbaks“ með skilaboðum til barnshafandi kvenna sem nota tóbak eða nikótín á meðgöngu. 

Birna Þórisdóttir 28. maí 2019 : Hagnýt ráð í sólinni

Útfjólublá geislun sólar getur valdið margvíslegum skaða og eykur hættu á húðkrabbameini. Á Íslandi er sólin sterkust í júní og júlí en huga þarf að sólarvörnum frá miðjum apríl og fram í seinnipart september. Þessa dagana er sólin sterk og mikilvægt að verja sig.

Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 27. maí 2019 : Mikilvægur stuðningur að lífshlaupi loknu

Í gegnum árin hefur Krabbameinsfélagið hlotið erfðagjafir frá einstaklingum sem kjósa að láta hluta af eigum sínum renna til félagsins eftir sinn dag. Ástæðurnar eru af ýmsum toga, en oftast er það vegna persónulegrar reynslu og stuðnings við málstað félagsins eða til minningar um ástvin.

Guðmundur Pálsson 17. maí 2019 : Öflug vinnu­stofa um endur­hæfingu krabba­meins­greindra

Fimmtudaginn 16. maí fór fram vinnustofa um endurhæfingu þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Vinnustofan var samstarfsverkefni endurhæfingarteymis Landspítala, Heilsustofnunar í Hveragerði, Krabbameinsfélags Íslands, Krafts, Ljóssins og Reykjalundar.

Guðmundur Pálsson 16. maí 2019 : Opið hús Brakka­sam­tak­anna sunnu­daginn 19. maí

Brakkasamtökin standa fyrir opnu húsi þann 19. maí næstkomandi. Þar munu samtökin opna nýja heimasíðu fyrir arfbera og fjölskyldur þeirra og stuðla að umræðum um stöðu mála varðandi BRCA og arfgeng krabbamein á Íslandi. 

Guðmundur Pálsson 15. maí 2019 : Dagur krabba­meins­hjúkrunar­fræð­inga

Þann 18.maí halda samtök evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga (EONS) upp á dag krabbameinshjúkrunarfræðinga í Evrópu. 

Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 14. maí 2019 : Mistök í póstsendingu skýra dræma þátttöku í skimun

Eftir frétt sem birt var í gær um dræma þátttöku kvenna í brjóstamyndatöku í Vestmannaeyjum kom í ljós að mistök áttu sér stað í póstsendingu boðsbréfa. 

Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 13. maí 2019 : NCU auglýsir styrki til rannsókna

Norrænu krabbameinssamtökin kalla eftir umsóknum um stefnumótandi verkefni tengd tóbaki og félagslegu ójafnrétti.

Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 13. maí 2019 : Mikil vonbrigði með mætingu kvenna í brjóstaskimun í Eyjum

Einungis um 20% kvenna í Vestmannaeyjum sem boðaðar voru í skimun fyrir brjóstakrabbameini í síðustu viku nýttu tækifærið og bókuðu tíma. 

Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 10. maí 2019 : Vísindasjóður veitir 60 milljónum til rannsókna

Í dag var úthlutað í þriðja sinn úr Vísindasjóði Krabbameinsfélags Íslands. Heildarupphæð styrkja var 60,3 milljónir króna en hæsta styrkinn, 10 milljónir króna, hlaut Erna Magnúsdóttir. 

Birna Þórisdóttir 8. maí 2019 : Gerum hreyfingu hluta af daglegu lífi

Í dag hófst Hjólað í vinnuna, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ. Starfsfólk Krabbameinsfélagsins tekur eins og áður þátt og hvetur alla til þess að gera virkan ferðamáta og hreyfingu hluta af daglegu lífi. Auk þess að bæta almenna líðan minnkar hreyfing líkur á krabbameinum og fleiri langvinnum sjúkdómum. 

Síða 1 af 2

Fleiri nýjar fréttir

Sol-og-solarvarnir-frettabref-1-

17. maí 2024 : Fréttabréf maí mánaðar

Sólin er umræðuefni fréttabréfs maí mánaðar. Við tökum fyrir sólarvarnir og hve miklu máli þær skipta fyrir alla, þó sérstaklega börnin. Þá ræðum við húðkrabbamein sem og ráð fyrir þau sem eru með krabbamein í sumarfríinu.

Lesa meira

16. maí 2024 : Styrkir til gæða­verkefna og vísinda­rannsókna í heil­brigðis­þjónustu

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Minningarsjóð um hjónin Bergþóru Magnúsdóttur og Jakob Júlíus Bjarnason.

Lesa meira

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?