Styrkja starfið
Leggðu þitt af mörkum
Öll starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir á stuðningi fólksins og fyrirtækjanna í landinu. Þú getur gengið í lið rúmlega 21.000 Velunnara sem styðja félagið í hverjum mánuði eða lagt þitt af mörkum á annan hátt. Leiðirnar eru margar. Saman náum við árangri!
Vefverslun
Í vefverslun félagsins er hægt að kaupa fallegar vörur til gjafa eða bara fyrir sig. Um leið styrkir þú baráttuna gegn krabbameinum.
Jólahappdrætti 2024: 354 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 67.980.000
Aðalvinningurinn, að verðmæti 5.890.000 kr er 100% rafmagnaður smart #1 Pro+ bíll frá bílaumboðinu Öskju. Dregið var 24. desember og vinningstölur voru birtar á vef Krabbameinsfélagsins 27. des og í Morgunblaðinu 28. desember.
Happdrætti Krabbameinsfélagsins
Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem alltaf hefur fengið góðar viðtökur. Stuðningur almennings og fyrirtækja í landinu gerir allt starf Krabbameinsfélgasins mögulegt, fræðslu og forvarnir, ráðgjöf og stuðning við sjúklinga og aðstandendur og vísindastarf.
Taktu þátt í baráttunni, því lífið liggur við
Mánaðarlegur stuðningur rúmlega 21.000 Velunnara, einstaklinga og fyrirtækja er einfaldlega forsenda góðra verka Krabbameinsfélagsins. Velunnarar bera uppi starfsemi félagsins allt árið um kring, um allt land. Saman náum við meiri árangri. Þinn stuðningur er nauðsynlegur, því lífið liggur við.
Minningarkort
Það er hlý og falleg hefð að minnast þeirra sem kveðja með því að senda aðstandendum minningarkort. Listaverkið á kortinu er eftir Eggert Pétursson listmálara og það inniheldur einfalda kveðju á íslensku, ensku eða dönsku.
Ný dagdeild er nauðsyn – lausnin er til!
Baráttumál sem varðar okkur. Einn af hverjum þremur Íslendingum getur vænst þess að greinast með krabbamein á lífsleiðinni. Hlúum vel að sjúklingum – og aðstandendum þeirra.
Allt þetta gera Velunnarar mögulegt
Við vitum að ráðgjöf félagsins hefur reynst fólki ómetanleg.
Við vitum að rannsóknir vísa leiðina fram á við. Krabbameinsfélagið stundar vísindarannsóknir og veitir myndarlega styrki til íslenskra krabbameinsrannsókna.
Það er krefjandi að þurfa að dvelja langdvölum fjarri heimili vegna rannsókna og meðferðar. Fólki utan af landi býðst að dvelja í notalegum íbúðum félagsins í Reykjavík .
Sérhæfð ráðgjöf og stuðningur við börn fólks með krabbamein.