Rannsóknir
Rannsóknir
Krabbameinsfélagið gegnir miklu hlutverki í öflun nýrrar þekkingar í heilbrigðisvísindum. Á vegum félagsins er sérstakur vísindasjóður sem hefur þann tilgang að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, m.a. með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
Áttavitinn
Í rannsókninni „Áttavitinn“ var rannsökuð reynsla einstaklinga sem greindust með krabbamein á árunum 2015-2019.
Heilsusögubankinn
Rannsóknin er á vegum Krabbameinsfélagsins og býðst öllum konum 18 ára og eldri að taka þátt í henni. Það tekur 5-10 mínútur að svara spurningalista rannsóknarinnar.
Fyrsta skilyrðið
„Til að geta náð árangri í baráttunni við þennan skæða óvin er fyrsta skilyrðið að þekkja hann.“
- Prófessor Níels Dungal, 1949