Beint í efni

Út­hlut­an­ir Vís­inda­sjóðs 2020

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitir 69 milljónir króna til 11 rannsókna árið 2020. Úthlutun ársins var kynnt á aðalfundi félagsins þann 6. júní.

69 milljóna króna fjárfesting í framförum

Úthlutað var úr sjóðnum í fjórða sinn og nam heildarupphæð styrkja rúmlega 69 milljónum króna. Alls bárust 27 umsóknir um styrk úr sjóðnum. Eftir umfjöllun Vísindaráðs Krabbameinsfélagsins valdi stjórn Vísindasjóðs 11 rannsóknir sem hlutu styrki að upphæð frá 1,8 milljónum upp í 10 milljónir króna.

Markmið sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum með því að styrkja árlega með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.

Vísindasjóðurinn var stofnaður í desember 2015 með framlögum frá Krabbameinsfélaginu og aðildarfélögum þess. Auk þess rann minningarsjóður Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson og sjóður Kristínar Björnsdóttur inn í sjóðinn. Formaður sjóðsstjórnar er Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala og prófessor.

Krabbameinsfélagið óskar styrkhöfum innilega til hamingju. 

Úthlutun úr Vísindasjóði árið 2020

Andri Steinþór Björnsson
Áhrif skimunar fyrir forstigi mergæxlis á andlega heilsu
kr. 9.276.000

Birna Baldursdóttir
Prófun á gagnvirku ákvörðunartæki sem aðstoðar karlmenn, sem greinst hafa með staðbundið blöðruhálskirtilskrabbamein, við ákvörðunartöku um meðferðarleið
kr. 4.980.000

Bylgja Hilmarsdóttir
Þróun örvefjalíkana úr briskrabbameini og notkun þeirra sem módel fyrir notkun PARP hindra í meðferð
kr. 3.100.000

Erna Magnúsdóttir
BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum
Kr. 10.000.000

Gunnhildur Ásta Traustadóttir
Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli
kr. 4.500.000

Hans Tómas Björnsson
Kortlagning kæliferilsins í krabbameinsfrumum til að varpa ljósi á ný meðferðarmörk, áhrif á lifun og meðferðarsvörun
kr. 9.122.525

Inga Reynisdóttir
Aukin tjáning Vacuole Membrane Protein 1 (VMP1) tengist verri horfum sjúklinga með HER2 brjóstakrabbamein
kr. 1.840.000

Margrét Helga Ögmundsdóttir
Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7
kr. 8.500.000

Ragnar Grímur Bjarnason
Síðbúnar afleiðingar krabbameina í æsku: Heilsufar, lífsgæði og hjarta- og efnaskiptatengdir áhættuþættir á fullorðinsaldri
kr. 4.320.000

Sigurður Guðjónsson
Þvagvegakrabbamein á Íslandi: Faraldsfræði, greining, meðferð og afdrif sjúklinga
kr. 4.300.000

Þórhildur Halldórsdóttir
Seinkun aldursklukkunnar: Dregur ljósameðferð úr flýttri líffræðilegri öldrun hjá konum eftir brjóstakrabbameinsmeðferð?
kr. 9.295.000