Beint í efni

Stuðn­ings­net­ið

Krabbameinsfélagið og Kraftur bjóða upp á jafningjastuðning fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur.

Þau sem veita stuðninginn eru einstaklingar sem hafa verið í sömu sporum. Öll sem koma inn í jafningjastuðninginn hafa lokið stuðningsfulltrúanámskeiði hjá sálfræðingi Krabbameinsfélagsins.

Öll samtöl eru trúnaðarmál.

Stuðningurinn getur farið fram í síma, tölvupósti eða þið mælt ykkur mót. Þú getur einnig óskað eftir því að fá að ræða við einhvern sem er á svipuðum aldri, af sama kyni og/eða sem hefur greinst með sömu tegund krabbameins. Reynt er að verða við öllum óskum ef hægt er.

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.

Viltu gerast stuðningsfulltrúi?

Til að gerast stuðningsfulltrúi þurfa að minnsta kosti tvö ár að vera liðin frá því að krabbameinsmeðferð lauk. Fyrir aðstandendur er einnig æskilegt að tvö ár séu liðin frá því að meðferð aðstandanda lauk. Einnig er nauðsynlegt að verðandi stuðningsfulltrúar séu að mestu búinir að vinna úr þeim tilfinningum sem krabbameinið hafði í för með sér svo þeir eigi auðveldara með að styðja aðra. 

Það er kostur ef þú býrð yfir hlýleika, næmni á líðan annarra, einlægni, sveigjanleika, dæmir ekki og átt auðvelt með að hlusta á aðra.

Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Þorri, sálfræðingur hafa samband við þig. Í framhaldi mun hann boða þig í viðtal þar sem þið farið yfir umsóknina og reynslu þína af krabbameini.

Ef niðurstaða ykkar beggja er sú að halda áfram með ferlið þá er næsta skref að sitja stuðningsfulltrúanámskeið á vegum Krafts og Krabbameinsfélagsins. Námskeiðið tekur tvö kvöld. Þegar því er lokið getur þú hafið sjálfboðaliðastarf sem stuðningsfulltrúi.

Öllum stuðningsfulltrúum býðst einstaklingshandleiðsla frá sálfræðingi Krabbameinsfélagsins.

Stuðningsfulltrúar sækja fræðslufund/hóphandleiðslu tvisvar á ári.