Beint í efni

Mottumars: Styrkja átakið

Mottumars

Mottumars 2025

Starf Krabbameinsfélagsins er fyrir fólkið í landinu og rekið fyrir styrki frá almenningi og fyrirtækjum. Með þínum stuðningi náum við enn meiri árangri. Kynntu þér hvernig þú getur lagt þitt á vogarskálarnar í Mottumars.

Skegg­keppni Mottu­mars

Skeggkeppni Mottumars er í fullum gangi og lýkur 31 mars! Þátttakendur safna ekki bara skeggi heldur líka áheitum. Kynntu þér allt um keppnina og leggðu þitt að mörkum með að heita á motturnar!

Skeggkeppni 2024 - hópmynd

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.

Við erum ekk­ert án ykk­ar

Starf Krabbameinsfélagsins er fyrir fólkið í landinu og rekið fyrir styrki frá almenningi og fyrirtækjum. Með þínum stuðningi náum við enn meiri árangri.

Krabbameinsfélagið tekur við styrkjum með millifærslu. Bankanúmer: 0301-26-005035
Kennitala: 700169-2789

Mottumars - Herferðarmynd

Hvernig verður þitt framlag að gagni? Til að ná árangri gegn krabbameinum þarf að nálgast verkefnið frá öllum hliðum, sem endurspeglast í starfsemi Krabbameinsfélagsins

  • Fræðsla og forvarnir er mikilvægur þáttur. Unnið er á fjölbreyttan hátt að því að koma á framfæri fróðleik varðandi krabbamein og hvernig hægt er að draga úr líkum á þeim. Helsta áherslan er á fræðslu um lífsvenjur sem tengjast krabbameinsáhættu.

  • Ráðgjöf og stuðningur  við fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur er eitt af forgangsverkefnum Krabbameinsfélagsins. Félagið veitir fólki með krabbamein, aðstandendum og syrgjendum endurgjaldslausa ráðgjöf og stuðning fagaðila; sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa.

  • Hjá Rannsókna- og skráningarsetri eru stundaðar krabbameinsrannsóknir. Áhersla er lögð á að skilja umhverfistengdar og erfðafræðilegar orsakir krabbameina og fylgjast með horfum sjúklinga og hvaða þættir hafa áhrif á þær. Hjá setrinu er rekin Krabbameinsskrá Íslands og samstarf við vísindamenn.

  • Vísindin varða leiðina fram á við. Sjóðurinn hefur reynst bylting í krabbameinsrannsóknum hér á landi. Tilgangur Vísindasjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, m.a. með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.

  • Krabbameinsfélagið nýtir fjölbreyttar leiðir til að reyna að ná til sem flestra. Efnið er aðgengilegt á vef félagsins Krabb.is – BleikaslaufanMottumarsKarlaklefinn  og Styrkleikarnir. Á Youtube-rás og Hlaðvarpsveitu á Spotify ásamt Facebook, Instagram, Linkedln og TikToK