Beint í efni

Skurð­að­gerð

Fyrsta meðferð flestra krabbameina er skurðaðgerð. Tilgangurinn er venjulega að lækna viðkomandi með því að fjarlægja allt æxlið.

Það er ekki alltaf raunhæft að fjarlægja allt æxlið í skurðaðgerð. Í sumum tilfellum er æxlið það stórt eða á slæmum stað að nauðsynlegt er að gefa lyfja- eða geislameðferð fyrir skurðaðgerð til minnka það fyrir aðgerðina. Einnig getur skurðaðgerð verið leið til að koma í veg fyrir myndun krabbameins, til að bæta lífsgæði eða að byggja upp vef eftir krabbameins skurðaðgerð.

  • Það getur verið ástæða til að fjarlægja líkamsvef sem með tímanum getur breyst í krabbamein. Dæmi um það eru separ sem eru fjarlægðir í ristilspeglun eða forstigsbreytingar í leghálsi sem eru fjarlægðar með keiluskurði. Heilt líffæri er einstaka sinnum fjarlægt þegar einstaklingur hefur fengið í arf genabreytingu sem eykur líkur á að þróa með sér krabbamein. Sem dæmi, þá gæti kona með mjög sterka ættarsögu um brjóstakrabbamein og stökkbreytingu í brjóstakrabbameinsgeni (BRCA1 eða BRCA2) kosið að láta fjarlægja brjóst sín og/eða eggjastokka.

  • Nauðsynlegt getur verið að ná í vefjasýni með skurðaðgerð til að greina æxlið, fá staðfest hvort það sé illkynja, góðkynja og hvaðan uppruni þess er. Með rannsóknum og prófunum er jafnframt hægt að segja til um hvaða meðferð eigi best við. Stundum er líka gerð kviðarholsspeglun til að kanna útbreiðslu meins, þ.e. athuga hvort það hafi sáð sér til annarra líffæra eða vefja.

  • Þegar krabbamein er bundið við einn hluta af líkamanum og hefur ekki dreift sér er hægt að fjarlægja æxlið í heilu lagi ásamt aðliggjandi heilbrigðum vef til að lækna viðkomandi. Stundum er einungis gerð skurðaðgerð en í mörgum tilfellum er lyfja- og/eða geislameðferð gefin fyrir eða eftir aðgerðina. Einstaka sinnum er gefin geislameðferð í aðgerð hjá einstaklingum sem eru með mein á byrjunarstigi. Þá er geislað svæðið þar sem æxlið hafði verið staðsett.

  • Það er ekki alltaf hægt að fjarlægja æxli að fullu, t.d. þegar það er staðsett á viðkvæmum stað í heila eða ef það hefur dreift sér. Þá getur skurðaðgerð engu að síður hjálpað til við að halda æxlinu í skefjum eða lina einkenni.

  • Krabbameinslyf eru að öllu jöfnu gefin um lyfjabrunn, lítið kringlótt málmhylki sem komið er fyrir undir húð fyrir neðan viðbein. Úr hylkinu liggur örmjó slanga sem þrædd er inn í  bláæð í brjóstholi. Með lyfjabrunni  losnar fólk við endurteknar nálastungur í bláæð.

    Sjá nánar um lyfjabrunn á vef Landspítalans.

  • Stundum hefur krabbameinsskurðaðgerð áhrif á útlit, eins og við brottnám brjósts. Hjá sumum konum hefur útlitið eftir brjóstnám ekki áhrif á líðan þeirra á meðan aðrar kjósa að byggja brjóstið upp aftur, annað hvort með eigin vef eða gervibrjósti sem er komið fyrir undir húð og brjóstvöðva.

    Hér má lesa má nánar um skurðlækningar brjóstakrabbameina á Landspítalanum.

    Einnig er algengt að byggja upp vefi eftir brottnám krabbameins úr höfði eða hálsi.