Beint í efni

Þegar vinnu­fé­lagi grein­ist með krabba­mein

Krabbameinsfélagið býður vinnuveitendum og samstarfsmönnum upplýsingar og ráðgjöf um hvernig hægt er að styðja við veikan starfsmann við greiningu, í meðferð, að meðferð lokinni og þegar snúið er aftur til vinnu.

Vinnan veitir mörgum öryggi og reglu á meðan daglegt líf getur að öðru leyti verið gerbreytt. Tengsl við vinnufélaga geta uppfyllt félagslegar þarfir og dregið úr einangrun. 

Það veitir styrk að finna fyrir umhyggju, að maður hafi hlutverki að gegna og skipti máli. Hér eru nokkur hollráð sem geta komið að gagni þegar vinnufélagi greinist með krabbamein:

Verum tilbúin að hlusta, leitast við að skilja og sýna áhuga, en þó án óþarfa hnýsni.

Sýnum nærgætni. Sumir eiga auðvelt með að tala um veikindi sín en aðrir vilja sem minnst um þau ræða.

Mörgum þykir erfitt að biðja um aðstoð. Spyrjum beint hvort hægt sé að aðstoða og hvernig. Ef aðstoð er afþökkuð er gott að láta viðkomandi vita að boðið standi áfram.

Sýnum sveigjanleika og verum tilbúin að breyta skipulagi til að koma til móts við breyttar aðstæður vinnufélagans.

Verum meðvituð um að það getur verið mjög mikilvægt fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein að halda áfram að vinna eða vera í tengslum við vinnustaðinn sinn. 

Það að greinast með krabbamein og fara í krabbameinsmeðferð hefur víðtæk áhrif, sem geta verið ólík milli einstaklinga. Algengar aukaverkanir eru þreyta, úthaldsleysi, einbeitingarskortur, hármissir, ógleði/uppköst, kvíði, hræðsla, reiði og sorg. 

Verum meðvituð um að líðan getur verið mjög breytileg. Algengt er að fólk í krabbameinsmeðferð eigi bæði góða daga og slæma.

Verum meðvituð um að þó að krabbameinsmeðferð sé lokið finna margir fyrir úthalds- og einbeitingarleysi löngu eftir að meðferð lýkur.

Hér má lesa meira um viðfangsefnið vinnufélagar og vinir.

Við erum til staðar fyrir þig og þína þegar á þarf að halda. Ef þú vilt nánari upplýsingar um hvernig hægt er að styðja vinnufélaga sem greinist með krabbamein skaltu hafa samband í síma 800 4040 eða með tölvupósti á radgjof@krabb.is.