Mottumarshlaupið
Mottumarshlaupið verður haldið í annað sinn þann 19. mars, dagskráin hefst kl. 17:30 en hlaupið verður ræst kl. 18. Hlaupið verður frá Fagralundi í Kópavogi um Fossvogsdalinn.
Dagskráin hefst kl. 17:30 með léttri upphitun og þátttakendur koma sér í rétta gírinn fyrir hlaupið sem verður ræst kl. 18:00. Hlaupið hefst og lýkur við Fagralund í Kópavogi og liggur hlaupaleiðin um Fossvogsdalinn. Boðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með eða án tímatöku. Einnig er boðið upp á að fólk hlaupi eða gangi styttri vegalengd, allt eftir getu hvers og eins, án tímatöku.
Hlaupastjóri er Inga Dís Karlsdóttir.
Skráning og hlaupagögn
Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri, Mottumarssokkar fylgja með, og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri, Mottumarsbuff fylgir með.
Hlaupagögn verða afhent frá 1. mars hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8 mánudaga – fimmtudaga á milli kl. 09:00 – 16:00 og á föstudögum á milli 09:00 – 14:00.
Sundlaugar Kópavogs bjóða í sund
Sundlaugar Kópavogs (sundlaugin við Borgarholtsbraut og Salalaug) bjóða öllum þátttakendum að koma og láta þreytuna líða úr sér að hlaupi loknu. Hlauparar sýna hlaupanúmerin sín í afgreiðslu og þurfa ekki að greiða fyrir aðgang.

Er þetta eitthvað fyrir mig?
Hlaupið hentar öllum, ungum og öldnum, reyndum hlaupurum og þeim sem eru óvanir eða jafnvel að stíga sín fyrstu skref í almenningshlaupi. Hægt er að hlaupa hratt og hægt, ganga alla leið eða blanda saman göngu og hlaupum og meira að segja stytta sér leið. Tímataka er í boði fyrir þá sem það vilja. Aðal málið er að þú takir þátt á þínum forsendum.
Hvernig undirbý ég mig?
Besti undirbúningurinn er einfaldlega að reima á sig skóna og fara út að ganga eða skokka! Betra er að fara rólega af stað og hreyfa sig daglega (eða næstum því) heldur en að fara of geyst og lenda í ógöngum.
Æfingaáætlanir
Hér að neðan er krækja á æfingaáætlanir sem eiga erindi hvort heldur fyrir þá sem hafa engan grunn eða hlaupara sem hafa góðan grunn en vilja komast hraðar yfir.



Þarf ég sérstakan vetrarbúnað?
Hlaupið verður í Fossvogsdalnum, bæði Reykjavíkur- og Kópavogsmegin, sem verður ruddur og saltaður ef aðstæður krefjast þess en auðvitað vonumst við eftir góðu veðri og auðum stígum. Það ætti vel að duga að vera í venjulegum íþróttaskóm eða utanvegahlaupaskóm ef þú átt slíka. Ef þér finnst öruggara að vera með brodda undir skónum skaltu ekki hika við það. Þú þarft hvorki að fjárfesta í utanvegahlaupaskóm með vatnsvörn og grófum botni, hlaupabroddum né endurskinsvesti fyrir sjálft Mottumarshlaupið, þó það gæti komið sér vel í undirbúningnum eða ef þú heldur áfram að hlaupa/ganga í kjölfarið.
Hvernig á ég að klæða mig?
Klæddu þig í hvaða íþróttaföt sem þér líður vel í, en taktu veðrið þann 19. mars með í reikninginn. Líklegt er að þér hitni eitthvað á leiðinni og algengustu mistökin eru að klæða sig of mikið.
Bílastæði
Við hvetjum öll sem ætla að koma og hlaupa eða hvetja hlaupara að mæta tímanlega. Dagskrá hefst kl. 17:30. Takmarkað er af bílastæðum við Fagralund, en hægt er að leggja við Fossvogsskóla og ganga yfir í Fagralund eða við Víkingsheimilið og rölta/skokka yfir.
Við lofum stuði og stemmningu um leið og við hreyfum okkur til stuðnings góðum málstað!
Við hvetjum þig til að taka þátt í Mottumarshlaupinu og hvetja þitt fólk til að taka þátt líka. Skráðu þig núna í hlaupið!
Aðalverðlaunin eru að taka þátt og við vonumst auðvitað til þess að Mottumarshlaupið nýtist þér sem hvatning til áframhaldandi hreyfingar. Regluleg hreyfing er mikilvægur þáttur í að draga úr líkum á krabbameinum!