Leiðir til að draga úr líkum á krabbameini
The European code against cancer.
Hér er að finna ráðleggingar sem ætlað er að upplýsa fólk um hvað það geti gert til að draga úr líkunum á að fá krabbamein.
Ráðleggingarnar voru settar fram af Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknastofnuninni (IARC) í samstarfi við Evrópsku krabbameinssamtökin (ECL) og byggja á niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna.
Áætlað er að 4 af hverjum 10 tilfellum krabbameina tengist lífsvenjum fólks og því til mikils að vinna, bæði fyrir einstaklinga og samfélög, að fólk temji sér sem heilbrigðasta lífshætti.
- Tóbak
– Ekki reykja eða neyta tóbaks í öðru formi
- Óbeinar reykingar
– Forðumst tóbaksreyk
- Líkamsþyngd
– Stefnum að heilsusamlegri líkamsþyngd
- Hreyfing
– Hreyfum okkur reglulega og verum líkamlega virk í daglegu lífi
- Mataræði
-Borðum ríkulega af grænmeti og ávöxtum, veljum heilkornavörur og borðum baunir.
-Takmörkum neyslu á rauðu kjöti og forðumst unnar kjötvörur
-Takmörkum neyslu á orkuríkum en næringarsnauðum matvælum.
-Forðumst sykraða drykki.
- Áfengi
-Takmörkum eða sleppum alfarið áfengisneyslu.
- Sól og útfjólubláir geislar
–Forðumst mikla sól og fylgjum leiðbeiningum um sólarvarnir.
-Notum ekki ljósabekki.
- Skimun fyrir krabbameinum
-Þiggjum boð í skimanir fyrir krabbameini.
- Brjóstagjöf og tíðahvarfahormón
-Mælt er með brjóstagjöf ef hún er möguleg.
-Takmarka ætti notkun tíðahvarfahormóna.
- Bólusetning og sýkingar
-Ákveðnar veirur geta valdið krabbameini og hægt er að verjast sumum þeirra.
Var efnið hjálplegt?
Gott að vita, takk!