Leiðir til að hefta skrið æxlisfruma
Þórarinn Guðjónsson frumulíffræðingur rannsakar skrið æxlisfruma frá upprunastað til annarra líffæra.
Illkynja æxlisvöxtur í brjóstkirtli felur í sér að æxlisfrumur þurfa að skríða frá upprunastað sínum og meinvarpast til annarra líffæra. Til þess að þetta geti gerst verða æxlisfrumurnar að umbreyta svipgerð sinni á þann hátt að þær öðlist aukinn skriðeiginleika.
Í þessu verkefni er verið að rannsaka hvernig RNA-sameindir stýra skriðeiginleikum fruma. Verkefnið mun auka skilning á því hvernig samspil próteina og ncRNA hefur áhrif á skrið fruma í þroskun og krabbameinsmyndun.
Þórarinn Guðjónsson, frumulíffræðingur og prófessor, hlaut 5,6 milljóna króna styrk árið 2018 og 4,6 milljóna króna styrk árið 2017 fyrir verkefnið Hlutverk non-coding RNAs í greinóttri formgerð og bandvefsumbreytingu þekjuvefjar í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli.
Hér má sjá Þórarin lýsa verkefninu í tengslum við úthlutun úr Vísindasjóðnum árið 2017: