Beint í efni
Styrkhafar Vísindasjóðs 2022

Út­hlut­an­ir Vís­inda­sjóðs 2022

Úthlutað var úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins í sjötta sinn þann í gær, 2. júní 2022. Veittir voru styrkir til 13 rannsókna að upphæð 68 milljónir króna. Þar af voru fjórir styrkir til nýrra rannsókna og níu framhaldsstyrkir til rannsókna sem áður hafa fengið styrk úr sjóðnum. Alls bárust 28 umsóknir um styrk úr sjóðnum.

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands var stofnaður 16. desember 2015 til að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, m.a. með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Hryggjarstykki sjóðsins var stofnframlag Krabbameinsfélagsins auk tveggja erfðagjafa; úr Minningarsjóði Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson annars vegar og Minningarsjóði Kristínar Björnsdóttur hins vegar. Síðan hefur sjóðurinn notið stuðnings sjálfsaflafjár Krabbameinsfélagsins en þar eru Velunnarar Krabbameinsfélagsins ómissandi.

Sjóðurinn hefur á undanförnum sex árum (2017-2022) veitt 71 styrk, alls 384 milljónir króna, til 41 mismunandi rannsóknar.

  • Yfirlit yfir úthlutanir úr Vísindasjóði til 2022

Styrkþegarnir í ár eru:

  • Berglind Ósk Einarsdóttir hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla.
  • Erna Magnúsdóttir hlýtur 4.793.400 kr. styrk fyrir verkefnið BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum.
  • Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 5.400.000 kr. styrk fyrir verkefnið Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum - Samanburður á frumæxlum og meinvörpum í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins.
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7.
  • Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Klínískt notagildi frumuflæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdómsframvindu.
  • Georgios Kararigas hlýtur 5.269.760 kr. styrk fyrir verkefnið Áhrif nýju curcúmín afleiðunnar C66 á hjartavöðvakvilla af völdum doxórúbicíns.
  • Rósa Björk Barkardóttir hlýtur 3.294.778 kr. styrk fyrir verkefnið Meinvaldandi áhrif BRCA1 c.4096+3A>G könnuð í frumulíkönum.
  • Þórhildur Halldórsdóttir hlýtur 5.554.080 kr. styrk fyrir verkefnið Seinkun aldursklukkunnar: Dregur ljósameðferð úr flýttri líffræðilegri öldrun hjá konum eftir brjóstakrabbameinsmeðferð?
  • Pétur Orri Heiðarsson hlýtur 5.990.087 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF umritunarþáttarins.
  • Guðmundur Hrafn Guðmundsson hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Ónæmisstyrking gegn hitatengdri daufkyrningafæð án sýklalyfja.
  • Tómas Guðbjartsson hlýtur 1.920.000 kr. styrk fyrir verkefnið Nýjungar í skurðmeðferð lungnakrabbameins á Íslandi.
  • Valur Emilsson hlýtur 5.878.175 kr. styrk fyrir verkefnið Vensl sermispróteina við þekkt og ný tilfelli krabbameina.
  • Valtýr Stefánsson Thors hlýtur 5.647.397 kr. styrk fyrir verkefnið Ónæmissvar barna eftir krabbameinsmeðferð - hvernig og hvenær er rétt að bólusetja? 
  • Úthlutun Vísindasjóðs 2022 mynd 1
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 2
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 3
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 4
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 5
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 6
  • Úthlutanir Vísindasjóðs 2022 mynd 7