Beint í efni
Síðbúnir fylgikvillar

Síð­bún­ir fylgi­kvillar (2/4)

Námskeið fyrir einstaklinga sem glíma við fylgikvilla sem ýmist má rekja til krabbameinsins eða ­krabbameinsmeð­ferðar­innar.

Á námskeiði um síðbúna fylgikvilla verður fjallað um nokkra af algengustu síðbúnu/langvinnu fylgikvillunum sem geta komið fram í kjölfar krabbameins og krabbameinsmeðferðar. Þessir fylgikvillar geta haft áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu. 

Þátttakendur fá meðal annars fræðslu um þreytu, svefn, hreyfingu, næringu, óttan við að greinast aftur, andlega líðan, minni, einbeitingu og streitustjórnun. Rætt verður um leiðir til að efla eigin heilsu og bæta líðan, auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið krabbameinsmeðferð og finna fyrir síðbúnum eða langvinnum aukaverkunum. Miðað er við að sex mánuðir eða lengra sé liðið frá því krabbameinsmeðferð lauk.

Námskeiðið er í fjögur skipti á netinu, þriðjudagana 18. mars til 8. apríl kl. 13:00 - 15:30.

Leiðbeinandi er Vigdís Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.