Beint í efni

Bleika slauf­an 2024

Hönnuður Bleiku slaufunnar 2024 er Sigríður Soffía Níelsdóttir. Verkefnið hefur persónulega þýðingu fyrir hana, en hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2020

Sigga Soffía er danshöfundur í grunninn og þekktust fyrir flugeldasýningar og blómlistaverk en hún hannar undir nafninu Eldblóm. Hún er fjölhæfur listamaður og líkt og klifurplantan sem teygir anga sína víða teygir hönnun hennar sig allt frá dansi yfir í vöruhönnun með anga yfir í mat, flugeldasýningar, ljóðlist og nú skartgripi.  

Verkefnið hefur persónulega þýðingu fyrir hana, en hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2020 og þurfti að fara í lyfja- og geislameðferð og aðgerð og hefur því miklar og sterkar tilfinningar tengdar þessu verkefni. „Ég þekki af eigin raun hversu mikilvægt það er að hafa baklandið og félag eins og Krabbameinsfélagið til styðja við mann í ferlinu öllu og ekki síður eftir að meðferð lýkur. Félagið gaf mér leiðarvísi í þeim nýja veruleika sem ég þurfti að fást við. Mér fannst mér bera skylda til að bera þennan boðskap áfram og þakka fyrir þann
mikilvæga stuðning sem ég hef fengið“.

Sigga Soffía hefur áður verið í samstarfi við Krabbameinsfélagið í Bleiku slaufunni. „Þegar mér bauðst að hanna Bleiku slaufuna var það ótrúlega skemmtilegt framhald af samstarfinu við Krabbameinsfélagið“ segir Sigga Soffía. „Það er líka alltaf gaman að fá áskorun um að gera eitthvað sem maður hefur ekki gert áður. Ég fékk strax fullt af hugmyndum bæði tengt texta og einhverju svona sjónrænu til að sameina flugelda og blóm og reyna þannig að ná kjarnanum úr Eldblómi inn í þetta verkefni. 

Bleika slaufan 2024
Sparislaufan 2024
Sparislaufan 2024 kassi

Slaufan í ár er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Sparislaufan í ár er gullhúðað, rósagyllt koparhálsmen í samlitri keðju. Hálsmenið er einstaklega glæsilegur gripur, stílhreinn en um leið djarfur. Hálsmenið kemur í afar fallegum gjafaumbúðum og er framleitt í takmörkuðu magni.

Frosið augnablik fangað

Slaufan í ár er þrjú eldblóm sem mynda skínandi blómakrans sem lítur út fyrir að hafa verið dýft ofan í fljótandi málm. „Allt tekur enda - ekkert er varanlegt“. Augnablikið þegar blómin springa út er ákveðinn hápunktur en mörgu þarf að huga að til að plantan blómstri. Að jafna sig eftir veikindi er svipað - og því meira sem við hlúum að fólkinu okkar eftir meðferð - því líklegra er að það blómstri aftur. Aðstandendur, ókunnugir sem bjóða góðan daginn, þeir sem að styðja við, peppa og segja þér að gefast ekki upp og trúa á þig hafa meiri áhrif en margan grunar.

„Fyrir mér er slaufan næla sem er hönnuð eins og flugeldasýning þar sem flugeldar eru sprengdir upp í ákveðinni röð til að mynda ákveðna mynd eða blóm sem springa út, í slaufunni frystum við augnablikið, líkt og flugeldasýningu í hápunkti“. 

Kaupum Bleiku slaufuna – sala hefst 1. október

Undanfarin ár hafa verið framleiddar tvær útgáfur af Bleiku slaufunni; almenna slaufan sem í ár er næla og Sparislaufan sem er hálsmen, sem er í takmörkuðu upplagi.

Sparislaufan er gullhúðað, rósagyllt koparhálsmen í samlitri keðju. Hálsmenið er einstaklega glæsilegur gripur, stílhreinn en um leið djarfur. Hálsmenið kemur í afar fallegum gjafaumbúðum og er framleitt í takmörkuðu magni. Sparislaufan hefur oft selst upp á fyrstu dögum átaksins og því er gott að tryggja sér eintak í tíma. Sparislaufan fæst í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind. 

Bleika slaufan verður í sölu frá 1. til 26. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind, og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt. 

Allur ágóði af sölu Bleiku slaufunnar rennur til starfsemi Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og bæta lífsgæði þeirra sem veikjast og aðstandenda þeirra. Öll starfsemi félagsins byggir á styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum og Bleika slaufan er ein af lykilstoðunum í starfsemi félagsins