Beint í efni

Blöðru­háls­kirt­il­s­krabba­mein

Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein karla og er um fjórðungur allra meina sem greinast hjá körlum á Íslandi.

Blöðruhálskirtill er líffæri sem er eingöngu hjá körlum og er á stærð við valhnetu eða golfkúlu. Hann er fyrir framan endaþarminn, undir þvagblöðrunni og umlykur efri hluta þvagrásarinnar. Hlutverk hans er að framleiða sáðvökva, sem verndar og nærir sáðfrumur. 

Nokkuð algengt er að frumurnar í kirtlinum stækki hjá eldri mönnum og getur það haft þær afleiðingar að kirtillinn þrengir að þvagrásinni með tilheyrandi einkennum. Þessi einkenni eru oft þau sömu og einkenni blöðruhálskirtilskrabbameins en góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli er mun algengari sjúkdómur og tengist ekki krabbameini. Bólga í blöðruhálskirtli eða sýking getur einnig valdið svipuðum einkennum.

Hvað er blöðruhálskirtilskrabbamein?

Nokkrar tegundir af frumum finnast í blöðruhálskirtli en krabbameinin eru langoftast af kirtilfrumugerð. Stundum getur krabbameinið vaxið hratt og dreift sér til annarra líffæra en langflest vaxa hægt.

Helstu einkenni

Oftast eru engin einkenni. Stækki meinið getur það þrýst á þvagrásina og valdið einu eða fleirum einkennum:

  • Þvagtregða, erfiðleikar að byrja þvaglát, kraftlítil þvagbuna, dropar í lok þvagbunu og/eða erfitt að tæma þvagblöðruna.
  • Tíð þvaglát, sérstaklega á næturnar.
  • Blöðrubólga, verkur eða óþægindi við þvaglát.
  • Blóð í þvagi eða sáðvökva. Góðkynja sjúkdómar eru þó algengasta orsökin.

Gott er að vita að einkennin geta stafað af öðru en krabbameini en mikilvægt er að leita til læknis verði þeirra vart til að skera úr um hver orsökin er.

Einkenni sem ágerast hratt eða koma fram hjá körlum sem eru yngri en 50 ára þarf alltaf að rannsaka. Hafi krabbameinið dreift sér til annarra líffæra getur það valdið eftirfarandi einkennum:

  • Beinverkjum í mjöðmum, mjaðmagrind, hryggsúlu eða lærleggjum.
  • Þreytu.
  • Slappleika.
  • Þyngdartapi.

Greiningaraðferðir

  • Ef leitað er til læknis vegna áhyggja af blöðruhálskirtilskrabbameini mun hann að öllum líkindum þreifa blöðruhálskirtilinn um endaþarm til að athuga hvort hann greini hnút eða stækkaðan kirtil.

  • Eftir aðstæðum mun læknirinn meta hvort ástæða er til að athuga með blóðprufu hvort hækkun sé á PSA (prostate-specific antigen) en það er mótefnavaki sem blöðruhálskirtillinn gefur frá sér. Hækkað PSA getur verið vísbending um blöðruhálskirtilskrabbamein en er þó ekki afgerandi.

  • Ef skoðun eða PSA-próf bendir til sjúkdómsins mun læknirinn ráðleggja sýnatöku, sem er öruggasta leiðin til að greina krabbamein. Langoftast er sýnatakan gerð ómstýrt um endaþarm en stundum þannig að nál er stungið gegnum spöng (húðina milli endaþarms og pungs). Mörg lítil sýni eru tekin frá kirtlinum sem eru greind og metin varðandi alvarleika (Gleason-flokkun).

  • Til að kanna útbreiðslu sjúkdómsins er eftir atvikum notað ómskoðun um endaþarm, sneiðmyndataka, segulómun og beinaskann. Skoðað er hvort æxlið sé bundið við kirtilinn, hefur vaxið út fyrir hann, í eitla eða til annarra líffæra.

PSA-gildi og Gleason-flokkun

Þótt hækkað PSA geti verið vísbending um blöðruhálskirtilskrabbamein er það eitt og sér ekki afgerandi. Hækkað PSA-gildi getur orsakast af öðrum þáttum, t.d. bólgum eða góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli. Einnig eru sumir karlar með krabbamein í blöðruhálskirtli en lágt PSA-gildi.

Við greiningu á vefjasýnum skoðar meinafræðingur þau í smásjá og skipar æxlinu í Gleason-flokk á bilinu 6-10. Hár Gleason-flokkur þýðir að krabbameinsfrumurnar eru mjög ólíkar eðlilegum frumum og líklegri til að dreifa sér. Lægri flokkur þýðir að æxlið er ólíklegra til að dreifa sér til annarra líffæra.

Alvarleiki sjúkdóms

Mikill breytileiki er á því hversu hratt æxli í blöðruhálskirtlinum vaxa, stundum getur krabbameinið vaxið hratt og dreift sér til annarra líffæra en langflest vaxa hægt. Horfur sjúklings eru háðar útbreiðslu krabbameinsins.

Alvarleiki meins er metinn út frá heildarrannsóknaniðurstöðum (PSA-gildi, Gleason-flokki og útbreiðslu) og fellur meinið út frá því í ákveðinn áhættuflokk. Hver áhættuflokkur hefur mismunandi horfur og meinin því meðhöndluð á mismunandi hátt.

Alvarleiki fer stigvaxandi á listanum um áhættuflokka blöðruhálskirtilskrabbameins:

  1. Lág áhætta
  2. Miðlungsáhætta
  3. Há áhætta
  4. Svæðisbundin meinvörp
  5. Fjarmeinvörp

Meðferð

Meðhöndlun blöðruhálskirtilskrabbameins má flokka í þrennt:

Virkt eftirlit

Sé sjúkdómurinn staðbundinn kemur undir ákveðnum skilyrðum til greina að fylgjast með viðkomandi og veita ekki meðferð nema sjúkdómurinn ágerist. Sú nálgun er kölluð virkt eftirlit. Regluleg þreifing kirtilsins, PSA-mæling og jafnvel sýnataka úr kirtlinum er notuð til þess að meta framgang sjúkdómsins.

Geislameðferð og skurðaðgerð

Hefðbundið er að gefa ytri geislameðferð og/eða fjarlægja kirtilinn með aðgerð en aukaverkanir þessara meðferða geta leitt til getuleysis og þvagleka. Það stafar af því að þvaglokan er rétt fyrir neðan blöðruhálskirtilinn og taugar og æðar sem fara niður til getnaðarlims liggja þétt við kirtilinn svo erfitt er að hlífa þeim við aðgerðina.

Andhormónameðferð

Ef sjúkdómurinn er þegar útbreiddur við greiningu eru horfur lakari en við staðbundinn sjúkdóm. Þrátt fyrir það má búast við góðri svörun með svokallaðri andhormónameðferð sem byggist á því að fjarlægja eða hindra virkni karlhormónsins (testósterón) á krabbameinsfrumurnar. Þessi meðferð getur haft í för með sér kyndeyfð og hugsanlega svitakóf en ekki verður nein breyting á útliti  karlmanna eða rödd þrátt fyrir meðferðina.

Áhættuþættir og forvarnir

  • Aldur
    Að eldast er stærsti áhættuþáttur blöðruhálskirtilskrabbameins. Rannsóknir benda til þess að allt að 80% af öllum 80 ára og eldri séu með blöðruhálskirtilskrabbamein í einhverri mynd. Flest þessara krabbameina liggja í dvala og munu aldrei valda neinum skaða.
  • Fjölskyldusaga
    Að eiga náinn ættingja (föður, bróður, son) sem greinst hefur með blöðruhálskirtilskrabbamein eykur áhættuna að greinast með krabbameinið og eykst áhættan eftir því sem fleiri nánir ættingjar hafa sjúkdóminn.
  • Kynþáttur
    Blöðruhálskirtilskrabbamein er algengast hjá svörtum körlum af afrískum uppruna og sjaldgæfast hjá körlum af asískum uppruna.
  • Stökkbreyting í BRCA2-geni
    Karlmenn sem fæðast með stökkbreytingu í BRCA2-geni hafa u.þ.b. fimmfalda áhættu á að greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli miðað við karla almennt. Þeir greinast yngri og sjúkdómurinn er alvarlegri og lengra genginn við greiningu. Hjá þeim hefur sjúkdómurinn líka hraðari framgang, einnig eftir að tekið hefur verið tillit til þess að hann er lengra genginn við greiningu.

    Vert er að taka fram að þessi stökkbreyting er sjaldgæf, hún er til staðar í um 2% sjúklinga með blöðruhálskirtilskrabbamein.

Að leita til læknis

Krabbameinsfélagið ráðleggur öllum að leita til læknis sem:

  • finna fyrir einkennum sem bent gætu til blöðruhálskirtilskrabbameins
  • eiga náinn ættingja (föður, bróður, son) sem greinst hefur með krabbamein í blöðruhálskirtli
  • eru með stökkbreytingu í BRCA2-geni

Tekið skal fram að jafnvel þótt ofangreindir þættir eigi ekki við geta karlmenn óskað eftir skoðun hjá heimilislækninum sínum með það að markmiði að leitað sé að vísbendingum sem gætu bent til krabbameins í blöðruhálskirtli. Við ráðleggjum þó eindregið að menn kynni sér málin vel áður, bæði kosti og galla, til að geta tekið upplýstar ákvarðanir. Slíkar rannsóknir geta gert kleift að greina mein fyrr, þegar meiri líkur eru á vægari sjúkdómi sem hægt er að lækna. Hins vegar geta þær leitt til ofgreiningar á krabbameinum sem þarfnast ekki meðferðar. Til að auðvelda körlum sem ekki finna fyrir einkennum og eru án áhættuþátta að leggja mat á  hvort það myndi henta þeim eða ekki að leitað sé vísbendinga um krabbamein í blöðruhálsi hefur verið þróað sérstakt gagnvirkt rafrænt fræðsluefni, sem samhliða felur í sér aðstoð við að taka ákvörðun. Smelltu hér til að nýta þér hið svokallaða Ákvörðunartæki.

Hvorki er mælt með né á móti skimun fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli hérlendis eða í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Tölfræði og lífshorfur

Lífshorfur byggjast á því hvort sjúkdómurinn er bundinn við kirtilinn eða hvort hann hafi dreift sér til eitla eða beina. Eins getur gangur hans verið mjög misjafn eftir einstaklingum.

Mestar líkur eru á því að hægt sé að uppræta sjúkdóminn ef hann greinist á byrjunarstigi. Í flestum tilvikum er sjúkdómurinn þó hægfara og veldur jafnvel aldrei einkennum, einkum ef hann er staðbundinn hjá eldri einstaklingum.

Upplýsingar frá Rannsóknarsetri - Krabbameinsskrá

Framför

Framför er eitt aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins. Það er félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda þeirra.

Í félaginu starfa stuðningshóparnir:

  • Frískir menn
    stuðningshópur fyrir menn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli en ekki farið í meðferð.
  • Góðir hálsar
    fyrir menn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og farið í meðferð.
  • Traustir makar
    stuðningshópur fyrir maka og aðstandendur karlmanna með blöðruhálskirtilskrabbamein.

Ítarefni og nánari upplýsingar

Til að auðvelda einkennalausum körlum (50-70 ára) að leggja mat á hvort það myndi henta þeim eða ekki að óska eftir að leitað sé hjá þeim að vísbendingum um krabbamein í blöðruhálskirtli hefur verið þróað sérstakt gagnvirkt rafrænt fræðsluefni, svokallað Ákvörðunartæki.

Ítarefni og nánari upplýsingar

Fræðslumyndbönd um krabbamein í blöðruhálskirtli: