Opnir tímar í Jóga Nidra, alla þriðjudaga
Opnir tímar í Jóga Nidra, djúpslökun og hugleiðslu.
Jóga Nidra er öflug leið til að kyrra hugann, losa um streitu og auka vellíðan. Iðkunin fer fram í liggjandi slökunarstöðu en hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina. Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Tímarnir eru ætlaðir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.
Leiðbeinendur eru Auður, Lóa Björk og gestakennarar
Tímarnir eru alla þriðjudaga í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, kl. 11:00 - 11:45. ATH. einnig er boðið upp á tíma á fimmtudögum.
Skráning nauðsynleg á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.