Beint í efni
Síðbúnir fylgikvillar

Síð­bún­ir fylgi­kvillar (4 skipti)

Námskeið fyrir einstaklinga sem glíma við fylgikvilla sem rekja má til krabbameinsins og eða ­með­ferðar­.

Á námskeiði um síðbúna fylgikvilla verður fjallað um nokkra af algengustu síðbúnu/langvinnu fylgikvillunum sem geta komið fram í kjölfar krabbameins og krabbameinsmeðferðar.

Þátttakendur fá meðal annars fræðslu um þreytu, svefn, hreyfingu, næringu, óttan við að greinast aftur, andlega líðan, minni, einbeitingu og streitustjórnun. Rætt verður um leiðir til að efla eigin heilsu og bæta líðan, auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið krabbameinsmeðferð og finna fyrir síðbúnum eða langvinnum aukaverkunum. Miðað er við að sex mánuðir eða lengra sé liðið frá því krabbameinsmeðferð lauk.

Námskeiðið er vikulega í fjögur skipti frá 8. til 29. október kl. 13:00 - 15:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8.

Leiðbeinandi er Vigdís Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.