Beint í efni
Hvíld

Heil­inn og ham­ingj­an (1/4)

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig áföll og langvarandi streita geta mótað heila og taugakerfi okkar.

Þessi nálgun útskýrir vel áhrifin á líðan okkar en einnig  viðbrögð í ýmsum aðstæðum í daglegu lífi. Kynntar verða ýmsar leiðir til að styrkja taugakerfið, breyta gömlum mynstrum og auka vellíðan með nokkuð einföldum aðferðum .

Hver tími endar á að lagst er undir teppi í Jóga nidra slökun og hljóðheilun. Hægt er að liggja á mjúkum svampdýnum eða í hægindastól.

Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein. Það er í fjögur skipti, þriðjudagana 29. apríl  til 20. maí kl. 13:00 – 15:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Leiðbeinandi: Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.