Hádegiserindi: þjálfun svengdarvitundar (streymi í boði)
Markmið þjálfun svengdarvitundar er að auka meðvitund um svengd og seddu, hlusta betur á líkamann, verða sáttari við matarvenjur sínar jafnframt því að þær verða heilbrigðari.
Ekki er fjallað um innihald, hollustu eða óhollustu matar en með því að æfa sig í þessari nálgun er líklegara að við veljum hollari fæðu.
Öll velkomin á hádegiserindið - Þjálfun svengdarvitundar sem verður miðvikudaginn 26. febrúar kl. 12:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 ásamt því að vera í streymi á streymisveitu Krabbameinsfélagsins, hér er hlekkur fyrir streymið.
Erindið heldur Harpa Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi Krabbameinsfélagsins.
Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.