Beint í efni
Krabbameinstengd þreyta

Há­deg­is­er­indi - Krabba­mein­stengd þreyta

Krabbameinstengd þreyta er algengasta langtíma aukaverkunin eftir krabbamein og krabbameinsmeðferð. Erindinu er ætlað að vekja athygli á þessu algenga einkenni.

Krabbameinstengdri þreytu má lýsa sem óvenju mikilli og íþyngjandi þreytu. Hún er ólík venjulegri þreytu, leggst mismunandi á fólk og það er erfitt að sofa hana úr sér. Sumir upplifa skerta orku á meðan aðrir eru meira og minna rúmliggjandi.

Hádegiserindið – Krabbameinstengd þreyta, verður miðvikudaginn 30. október kl. 12:00 í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 34, Akureyri, ásamt því að vera streymt á ZOOM.

Erindið heldur Jenný Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. 

Skráning og nánari upplýsingar er á kaon@krabb.is eða í síma 461 1470. Ekkert þátttökugjald.