Beint í efni
Málþing: Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna 2024

Al­þjóða­dag­ur krabba­meins­rann­sókna

Krabbameinsfélagið býður til málþings í tilefni alþjóðadags krabbameins­rannsókna þriðjudaginn 24. september, í húsi Krabbameinsfélagsins.

Málþingið hefst kl.16:30 á 1. hæð. Í beinu framhaldi verður síðan boðið upp á léttar veitingar ásamt veggspjaldakynningum á 4. hæð kl.18:00.

Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur okkur tækifæri til að fræðast um krabbameinsrannsóknir og gleðjast yfir þeim framförum sem hafa átt sér stað fyrir tilstilli þeirra. Dagurinn er líka gott tækifæri til að undirstrika mikilvægi rannsóknanna, vísindamannanna sem stunda þær og styrktaraðila.

Við vonum að allir sem tengjast eða hafa áhuga á krabbameinsrannsóknum á Íslandi og hafa áhuga á auknum árangri í baráttunni við krabbamein noti tækifærið og taki þátt í deginum með okkur. Krabbamein varða okkur öll og framfarir verða fyrst og fremst í gegnum vísindastarf.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin en skráning er nauðsynleg. Sérstök skráning er líka fyrir þá aðila sem óska eftir að kynna veggspjald.

Málþing september