Beint í efni

Verð­ur þitt fyr­ir­tæki sam­starfs­að­ili?

Fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum til baráttunnar gegn krabbameinum í konum með því að gerast samstarfsaðili Bleiku slaufunnar.

Sam­starfs­að­ilar Bleiku slauf­unnar

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Þitt fyrirtæki getur lagt sitt af mörkum til baráttunnar með því að gerast samstarfsaðili Bleiku slaufunnar.

Hvernig verður þitt fyrirtæki samstarfsaðili?

Fyrirtæki geta farið ýmsar leiðir í því að verða samstarfsaðili Bleiku slaufunnar, t.d. með því að:

  • selja vöru eða þjónustu og styrkja átakið um upphæð ákveðna upphæð eða hlutfall af söluverði.
  • gefa hluta af veltu dags eða tímabils til átaksins.
  • gefa fasta upphæð fyrir hverja afgreiðslu eða skráningu.
  • halda bleikt boða eða viðburð og safna fé.
  • taka þátt í Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar.

Hér að neðan eru eyðublað fyrir þau fyrirtæki sem óska eftir að gerast samstarfsaðili Bleiku slaufunnar.

Samstarfsaðilar áberandi í miðlum Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélagið leggur áherslu á að nýta alla sína miðla og viðburði til að vekja athygli á vöru og þjónustu þeirra fyrirtækja sem eru samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar.

Hér eru nokkur dæmi:

  • Samstarfsaðilar fá umfjöllun á vef Bleiku slaufunnar.
  • Upplýsingum um samstarfsaðila, vörur þeirra og þjónustu er miðlað á samfélagsmiðla Bleiku slaufunnar.
  • Við sendum fjölpóst á póstlista félagsins (70.000 netföng) 2-3 sinnum í október til að vekja athygli á samstarfsaðilum.
  • Samstarfsaðilum er boðið að vera með bás á Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar sem fram fer í Háskólabíói þriðjudaginn 1. október.

Samstarfsaðilar fá aðgang að fjölbreyttu kynningarefni sem þeir geta nýtt á vef- og samfélagsmiðlum og útgefnu efni. Sjá nánar um samstarfsaðila Bleiku slaufunnar.

Kynningarefni Bleiku slaufunnar

Samstarfsaðilar hafa aðgang að merki Bleiku slaufunnar í ýmsum útfærslum ásamt margvíslegri grafík og leiðbeiningum um notkun.

Hér má lesa bréf til samstarfsaðila vegna þátttöku í Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar.

Svipmyndir frá Opnunarhátíðinni í Háskólabíói 2022

Svipmyndir frá Opnunarhátíðinni í Háskólabíói 2022

HELSTU TÍMASETNINGAR ÞRIÐJUDAGINN 1. OKTÓBER - OPNUNARHÁTÍÐ BLEIKU SLAUFUNNAR 2024 

Kl. 13:00 húsið opnar fyrir uppsetningu sölubása
Kl. 17:30 – Allt uppsett og tilbúið fyrir gesti
Kl. 18:00 – Húsið opnar fyrir gesti og kynning samstarfsaðila hefst
Kl. 19:30 – Dagskrá hefst á sviði í aðalsal 
Kl. 20:15 – Frumsýning kvikmyndarinnar  „ We live in Time”  
Kl. 20:35 – Hlé / Samstarfsaðilar hafa kynningar í hléi 
Kl. 21:00 – Sýning kvikmyndar heldur áfram 
Kl. 22:15 – Sýningu lýkur og þar með dagskrá kvöldsins 

Ath. Allar tímasetningar u.þ.b. 

MIKILVÆGIR PUNKTAR:

  • Samstarfsaðilar fá aðstöðu í anddyri hússins til að kynna vörur sínar og þjónustu sér að kostnaðarlausu.  Staðsetning verður tilkynnt áður en uppsetning hefst.
  • Hver samstarfsaðili kemur með sitt markaðsefni til útstillingar. Háskólabíó getur lagt til borð en þau þarf að panta fyrirfram.
  • Aðgangur er að rafmagni, fjöltengi eru takmörkuð. Hver og einn samstarfsaðili er hvattur til að láta vita af rafmagnsþörf og koma með sín fjöltengi.