Beint í efni
Kona í slökun

Slök­un - Nú­vit­und og sjálfsmildi

Að læra að sýna sér mildi með aðferðum núvitundar snýst meðal annars um að geta brugðist við á styðjandi hátt gagnvart sér sjálfum líkt og þú myndir gera þegar vinur eða vinkona á í hlut. 

Aðferðir núvitundar og sjálfsmildi hjálpa þér líka að læra að sitja með erfiðum tilfinningum eða hugsunum og veita þeim einskonar hlýja nærveru í stað þess að leggja á flótta frá þeim og að læra þannig að þekkja þær betur.

Hér má hlýða á Slökun - Núvitund og sjálfsmildi.

Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá ráðgjafar- og stuðningsþjónustu Krabbameinsfélagins leiðir slökunina.

Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.

Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.