Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins veitt í þriðja sinn
Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins er veitt þeim aðilum sem félaginu þykir hafa lagt málstaðnum lið með eftirtektarverðum hætti. Viðurkenning var veitt í þriðja sinn 25. maí sl.
Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins í ár fær starfsfólk sjúkrahúsa um land allt fyrir að leggja sig fram, gera sitt besta og örlítið meira en það fyrir fólk sem er að takast á við krabbamein.
Í kerfi, sem er yfirhlaðið, við aðstæður sem í mörgum tilvikum eru heldur bágar, undir miklu álagi og stundum við takmarkaðan skilning, heyrum við hjá Krabbameinsfélaginu, fólk með krabbamein næstum undantekningalaust hæla starfsfólki sjúkrahúsanna með orðum eins og:
Það eru allir að leggja sig fram
Það eru allir að gera sitt besta
Í krabbameinsmeðferð er fólk, ásamt sínum nánustu, að takast á við ein erfiðustu verkefni lífs síns, jafnvel upp á líf og dauða. Á þeim tíma leikur starfsfólk sjúkrahúsanna algert lykilhlutverk í lífi fólks sem leggur allt sitt traust á það.
Hluti af starfsfólkinu er mjög sýnilegt meðan aðrir vinna sína vinnu bak við tjöldin. Allir í keðjunni eru hins vegar ómissandi ef árangur á að nást.
Það voru fulltrúar 15 fjölbreyttra fagstétta sem tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd sinnar stéttar.
Við vitum að fólk með krabbamein og aðstandendur þess fær frábæra þjónustu á fleiri en einum stað í kerfinu en nú viljum við hjá Krabbameinsfélaginu veita starfsfólki sjúkrahúsa samfélagsviðurkenningu félagsins fyrir það dýrmæta starf sem það sinnir í þágu fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra með þökk fyrir þeirra frábæra og mikilvæga starf.
Fagstéttirnar eru:
1. Eðlisfræðingar
2. Erfðaráðgjafar
3. Félagsráðgjafar
4. Geislafræðingar
5. Hjúkrunarfræðingar
6. Iðjuþjálfar
7. Lífeindafræðingar
8. Lyfjafræðingar
9. Læknar
10. Næringarfræðingar
11. Prestar/djáknar
12. Ritarar/aðstoðarfólk.
13. Sálfræðingar
14. Sjúkraliðar
15. Sjúkraþjálfarar