Krabbameinsfélagið greip Elvu á erfiðum biðtíma
Elva Björk Bjarnadóttir hélt að doðinn sem hún fann fyrir öðru megin í andlitinu væri ný einkenni tengd mígreni sem hún hefur haft frá því hún var krakki. Hún hundsaði einkennin en þegar hún loks fór til læknis blasti alvaran við.
„Ég fæ símtal um að það hefði fundist einhver fyrirferð í hausnum á mér og að sérfræðingur þurfi að hafa samband. Þá tók við biðtími sem var alveg virkilega erfiður“.
Hún segir fréttina hafa verið erfiðari fyrir aðstandendur sína en hana. Hún sá það bara á þeim og fannst hún i kjölfarið þurfa að passa sig á því hvað hún segði við þau til að bæta ekki við ótta þeirra. Í fyrstu hafi þetta verið óraunverulegt en svo hafi komið yfir hana rosalegur ótti. Hún leitaði því til Krabbameinsfélagsins.
„Ég kem í Krabbameinsfélagið á þessum biðtíma sem hjálpaði mér að ná utan um hlutina“
Meðan á biðtímanum stóð velti hún mörgum spurningum fyrir sér eins og þeim að fá góðar fréttir eða slæmar og hvernig hún ætti að takast á við það. Greiningin sem Elva Björk fékk að lokum var góðkynja æxli. Hún segir Krabbameinsfélagið hafa gripið sig í þessum aðstæðum.
„Það er ótrúlega gott að vita að það eru svona sterk og góð samtök ef eitthvað gengur ekki einsog það á að gera, hjá Krabbameinsfélaginu er heill hópur af fólki sem veit hvernig manni líður og getur leiðbeint manni!“