Beint í efni
Hugleiðsla

Nám­skeið í nóv­em­ber: Hug­leiðsla og sjálfs­styrk­ing fyr­ir börn

Námskeið fyrir börn sem eru aðstandendur einstaklings sem hefur greinst með krabbamein

Krabbameinsfélagið býður upp á námskeið í nóvember fyrir börn sem eiga aðstandanda sem greinst hefur með krabbamein. 

Hugleiðslan og þær aðferðir sem kenndar verða í tímunum miða að því að skapa innra jafnvægi og styrkja sjálfsmyndina. Aðgangur að vefsíðunni heillastjarna.is fylgir með þátttöku en þar er boðið upp á fjölbreyttar hugleiðslu- og slökunaræfingar fyrir börn. 

Dagsetningar eru eftirfarandi:

  • Fyrir 6-9 ára börn: fimmtudagana 14. og 21. nóvember kl. 14-15.30.
  • Fyrir 10-13 ára börn: fimmtudagana 14. og 21. nóvember kl. 16-17.30

Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, grunnskólakennari og hugleiðsluleiðbeinandi. 

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.