Beint í efni

Jóla­happ­drætti: Stuðn­ingur við marg­þætta starf­semi

Dregið verður 24. desember í jólahappdrætti Krabba­meins­félagsins.  Vinningar eru 284 talsins að verðmæti rúmar 55 milljónir króna.

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhags­stuðningi við það.

Kaupa miða i vefverslun

Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 284 talsins að verðmæti rúmar 55 milljónir króna. 

Aðalvinningurinn, að verðmæti 4.790.000 krónur, er 100% rafmagnaður ORA frá bílaumboðinu Heklu. Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Tuttugu vinningar eru Trek rafmagnshjól Allant+7, hvert að verðmæti um 530 þúsund krónur. Tíu vinningar eru golf PowaKaddy rafmagnskerrur, hver að verðmæti um 190 þúsund krónur. Þrjátíu vinningar eru úttektir frá Fjallakofanum, hver að verðmæti 100.000 krónur.Vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur, eru 100 talsins. Einnig eru 120 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. 

Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 og í vefverslun félagsins. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1928. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.850 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabba­meins­sjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð. Nú eru um 17.500 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.