Beint í efni
Jólahappdrætti 2024

Jóla­happ­drætti Krabba­meins­fé­lags­ins

Krabbameinsfélagið hefur allt frá árinu 1955 staðið fyrir happdrætti sem hefur verið veigamikil tekjulind fyrir starf félagsins og átt þátt í uppbyggingu þess og þróun. Miði er möguleiki.

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Krabbameinsfélagið hefur allt frá árinu 1955 staðið fyrir happdrætti sem hefur verið veigamikil tekjulind fyrir starf félagsins og átt þátt í uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­forvarnir, útgáfa fræðslurita, ráðgjöf og stuðningur við fólk með krabbameins og aðstandendur, rannsóknir og vísindastarf eru allt þættir í fjölbreyttri starfsemi félagsins sem byggist fyrst og fremst á stuðningi almennings og fyrirtækja. Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd happdrættisins og nýtir tekjur af því fyrst og fremst til fræðslu- og forvarnastarfs t.d. stendur félagið fyrir hvatningarátakinu „Skrepp í skimun“.       

Vinningar eru 354 talsins að verðmæti tæpar 68 milljónir króna og eru skattfrjálsir:

  • Aðalvinningurinn, að verðmæti 5.890.000 krónur, er 100% rafmagnaður smart #1  Pro+ frá bílaumboðinu Öskju.
  • Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna.
  • Þrjátíu vinningar eru úttektir frá Erninum, hver að verðmæti 500.000 krónur.
  • Fjörutíu vinningar eru úttektir frá Fjallakofanum, hver að verðmæti 75.000 krónur.
  • Vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur, eru 130 talsins.
  • Einnig eru 150 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur.

Dregið verður 24. desember og vinningstölur birtar á vef Krabbameinsfélagsins 27. des, eftir hádegi, og birtar í Morgunblaðinu 28. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka og eiga möguleika á glæsilegum vinningum.

Greiddur heimsendur miði er með tvöfaldar vinningslíkur (tvö miðanúmer). Miðar eru einnig til sölu í vefverslun Krabbameinsfélagsins  og á skrifstofu félagsins að Skógarhlíð 8. 

Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1928. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga.

Baráttan gegn krabbameinum er brýn og fyrirséð er að krabbameinum fjölgi mjög mikið á næstu árum, fyrst og fremst vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar.

Ár hvert greinast að meðaltali um 2.000 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameina, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð. Nú eru um 18.500 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameina.