Beint í efni
Bleika slaufan 2006.

Bleika slauf­an 25 ára

Einstakt tækifæri til að eignast eldri slaufur 

Margir bíða alltaf spenntir eftir Bleiku slaufunni og eiga allar Bleiku slaufurnar.  Ef þig vantar í safnið eða langar að eignast allt safnið þá er hægt að kaupa Bleikar slaufur fyrri ára hér í vefverslun Krabbameinsfélagsins.

Bleika slaufan kom upprunalega til landsins í gegnum heildverslunina Artica árið 2000 og var dreift í verslanir en fólk gat styrkt baráttuna gegn brjóstakrabbameinum með framlögum sem runnu til Krabbameinsfélagsins og Samhjálpar kvenna. Fyrstu árin var Bleika slaufan afar einföld og úr taui en hún festi sig hratt í sessi og var þegar árið 2002 orðið árlegt árveknisátak Krabbameinsfélagsins, sem þjóðin fylkti sér á bak við. 

Árið 2007 framleiddi Krabbameinsfélagið í fyrsta sinn sérstaka Bleika slaufu og önnur tímamót urðu árið eftir þegar íslenskur hönnuður átti í fyrsta sinn heiðurinn af Bleiku slaufunni. Frá árinu 2008 hafa íslenskir hönnuðir, í góðu samstarfi við Krabbameinsfélagið, skapað einstaka Bleika slaufu á hverju ári. Í þeim hópi eru okkar færustu hönnuðir og gullsmiðir. Ein undantekning er á þessu, árið 2011, þegar afrískar konur hönnuðu og framleiddu slaufuna og fengu þá í fyrsta sinn laun fyrir sína vinnu. 

Á árabilinu 2013 til 2018 stóðu Krabbameinsfélagið og Félag íslenskra gullsmiða fyrir samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar meðal gullsmiða. 

Frá 2010 hefur sjónum verið beint að krabbameinum hjá konum í átaki Bleiku slaufunnar, þó brjóstakrabbamein sé ávallt í forgrunni enda algengasta krabbamein kvenna. 

Bleiku slaufurnar 2006 - 2017.
Bleiku slaufurnar frá árinu 2018 til 2024.