Beint í efni
Bláa Lónið styrkir Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins

Bláa Lón­ið styrk­ir Vís­inda­sjóð Krabba­meins­fé­lags­ins

Í ár studdi Bláa Lónið Krabbameinsfélagið með þátttöku í átaksverkefnunum Mottumars og Bleiku slaufunni. Líkt og fyrri ár rann hluti af sölu sturtugels Bláa Lónsins í mars og varasalvans í október til Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins.

Að þessu sinni söfnuðust alls 6.328.350 króna sem er hæsta upphæð sem safnast hefur hingað til. Af því tilefni afhenti Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, Krabbameinsfélaginu söfnunarfé átaksins. 

„Átaksverkefni Krabbameinsfélagsins eru mikilvæg samfélagsverkefni og það er okkur sönn ánægja að geta veitt fjárstuðning sem þennan. Það mikilvæga starf sem Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins vinnur er samfélaginu öllu til góða," segir Grímur.

„Stuðningur Bláa Lónsins hefur verið okkur mjög mikilvægur. Hann gerir okkur kleift að styðja við enn fleiri rannsóknir til að ná sem mestum árangri í baráttunni við krabbamein á Íslandi“ segir Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður fjáröflunar- og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu.

Um Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins:Tilgangur sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferðum og lífsgæðum sjúklinga.

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá 2017-2024, veitt 98 styrki, alls 562,4 milljónir króna, til 58 rannsókna.

Nánari upplýsingar um Vísindasjóðinn og rannsóknirnar sem styrktar hafa verið má nálgast hér: https://www.krabb.is/visindasjodur/

Meðfylgjandi er mynd af Árna Reyni Alfredssyni forstöðumanni fjáröflunar- og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu ásamt Ásu Sigríði Þórisdóttur kynningarstjóra, þar sem þau veita söfunarfé frá Bláa Lóninu viðtöku. Söfnunarféð afhentu Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu, reksturs og þjónustu og Sigurður Þorsteinsson framkvæmdastjóri brands, markaðsmála, hönnunar og framkvæmda.