Beint í efni

Að­al­fund­ar­boð

Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands verður haldinn laugardaginn 24. maí 2025 og hefst kl. 13.  

Hádegisverður fyrir aðalfundarfulltrúa hefst kl. 12. 

Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins: 

  1. Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár. 
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. 
  3. Skýrslur aðildarfélaga lagðar fram til kynningar. 
  4. Kynning á starfs- og fjárhagsáætlun til tveggja ára. 
  5. Lagabreytingar. 
  6. Stjórnarkjör. 
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, og eins til vara, til eins árs.
  8. Kosning fimm manna uppstillingarnefndar. 
  9. Önnur mál. 

Hverju starfandi aðildarfélagi er heimilt að senda einn fulltrúa á aðalfund fyrir hverja 200 félagsmenn, eða brot úr þeim fjölda, þó aldrei fleiri en sex fulltrúa. Jafnframt hafa stjórnarmenn Krabbameinsfélags Íslands, sem ekki eru kjörnir fulltrúar síns aðildarfélags, sem og starfsmenn KÍ seturétt á aðalfundi með málfrelsi.