Beint í efni

Tólf leið­ir sem draga úr lík­um á krabba­meini

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Evrópsku krabbameinssamtökin (ECL) hafa sett fram eftirfarandi ráðleggingar um lífsstíl til að draga úr líkum á krabbameini. 


Ráðleggingarnar byggjast á niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna:

  • Reykjum hvorki né neytum tóbaks 
  • Forðumst óbeinar reykingar
  • Stefnum að hæfilegri líkamsþyngd
  • Hreyfum okkur daglega og höldum kyrrsetu í lágmarki

Verum meðvituð um að fæðuval skiptir máli:

  • Borðum ríflega af heilkornavörum, baunum, grænmeti og ávöxtum
  • Takmörkum neyslu á rauðu kjöti
  • Forðumst unnar kjötvörur
  • Forðumst sykraða drykki
  • Neytum áfengis í hófi eða sleppum því
  • Fylgjum leiðbeiningum um sólarvarnir og forðumst ljósabekki
  • Brjóstagjöf dregur úr líkum á brjóstakrabbameini
  • Þiggjum boð í skimanir og bólusetningu gegn HPV-veirum
  • Takmörkum notkun tíðahvarfahormóna ef hægt er