Ný rödd
Félagið Ný rödd var stofnað 20. desember 1980.
Starfsemi
Ný rödd er stuðningsfélag fólks sem misst hefur barkakýli og er með stóma á hálsi.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.