Beint í efni

Fram­för: Mál­þing Bláa tref­ils­ins 9. nóv­em­ber

Málþing þar sem m.a. verður rætt um hlutverk stuðningsfélaga fyrir karla með blöðruhálskirtilskrabbamein og áhrif batasamfélaga á endurheimt lífsgæða þeirra eftir meðferð við krabbameini í blöðruhálsi? Streymi í boði.

Málþingið verður fimmtudaginn 9. nóvember kl. 14:00-16:30 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Streymi í boði í Streymisveitu Krabbameinsfélagsins

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.Dagskrá

Hinrik Greipsson stjórnar málþinginu.

1. Setning: Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður hjá Krabbameinsfélaginu Framför.

2. The real burden of prostate cancer. Með upptöku - Andre Deschamps fyrrum formaður EUOMO, evrópusamtaka félaga karla með krabbamein í blöðruhálskirtli. 

3. Sjúklingafélög sem batasamfélög - Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður hjá Framför.

4. Þverfagleg endurhæfing – efling lífsgæða – Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins.

5. KAFFIHLÉ

6. Sálfélagslegur stuðningur við krabbameinsgreinda og aðstandendur - Þorri Snæbjörnsson teymisstjóri hjá Krabbameinsfélaginu.

7. Reynsla af stuðningi stuðningsfélags - Henry Gränz.

8. Umræða og fyrirspurnir.

9. Ráðstefnuslit: Stefán Stefánsson framkvæmdastjóri hjá Krabbameinsfélaginu Framför.