Beint í efni
20230928_ros_DSF9753

Opn­un­ar­há­tíð Bleiku slauf­unnar: Takk fyr­ir sam­ver­una og stuðn­ing­inn

Það er óhætt að segja að gleði, samhugur og samstaða hafi ráðið ríkjum á opnunarviðburði Bleiku slaufunnar sem haldinn var í Þjóðleikhúsinu 28. september. Myndirnar sem hér fylgja segja allt um stemninguna.

Bleiki liturinn réð ríkjum á opnunarviðburðinum. Gestir kvöldsins voru vel með á nótunum og skörtuðu bleiku fyrir okkur öll. Húsið var opnað kl. 18:30 þar sem vinir Bleiku slaufunnar kynntu og seldu vörur til styrktar átakinu í Þjóðleikhúskjallaranum og gestir smelltu af sér skemmtilegum myndum í myndakassanum.

Á stóra sviðinu fór Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, stuttlega yfir starfsemi félagsins og mikilvægi Bleiku slaufunnar sem árverkni- og fjáröflunarátaks í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Hönnuðum Bleiku slaufunnar 2023 þakkað

Unnur Eir Björnsdóttir, Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Halla Þorvaldsdóttir

Hönnuðum Bleiku slaufunnar, þeim Lovísu Halldórsdóttur Olesen (by lovisa) og Unni Eir Björnsdóttur (EIR eftir Unni Eir), var þakkað kærlega fyrir þeirra mikilvæga framlag til bleikustu Bleiku slaufunnar frá upphafi. Myndband af hönnun slaufunnar.

Birnu Ketilsdóttur Schram, sem leikstýrði auglýsingu herferðarinnar í ár, var þakkað fyrir sitt framlag. Birna missti móður sína úr krabbameini í fyrra og segir að verkefnið sé henni því afar kært og í raun innblásið af þeirri reynslu. Auglýsingin er með bleikum ljóma og sýnir máttinn í samstöðunni. Að því loknu var auglýsing átaksins frumsýnd sem sjá má hér. 

Birna Ketilsdóttir Schram

Birna Ketilsdóttir Schram

Sérstök hátíðarsýning var svo á leikverki Sigríðar Soffíu Níelsdóttur „Til hamingju með að vera mannleg“, Ástarjátningar til lífsins - sem fjallar um þrautseigju, andlegan styrk og samfélag kvenna sem standa hver með annarri, en eitt meginþema Bleiku slaufunnar í ár er einmitt samstaða og máttur hennar. Hér segir Sigga Soffía okkur frá tilurð verksins.

Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 2024

Til hamingju með að vera mannleg

Hér fyrir neðan sjáið þið nokkrar af myndum kvöldsins en á Facebook-síðu Bleiku slaufunnar getið þið nálgast enn fleiri myndir.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna.

Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 2024
Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnarv2024
Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 2024
Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 2024