Beint í efni
Bleika_Skimun_3840x2160

Opn­un­ar­há­tíð Bleiku slauf­unnar 28. sept­em­ber í Þjóð­leik­hús­inu

Nú styttist í Bleikan október. Tryggðu þér miða á opnunarviðburðinn sem verður í Þjóðleikhúsinu 28. september.

Húsið verður opnað kl. 18:30 með glimrandi og glitrandri bleikri stemningu. Samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar kynna og selja bleikar vörur til styrktar átakinu í Þjóðleikhúskjallaranum. Dagskrá hefst á stóra sviðinu kl. 20 með stuttri opnunar- og kynningardagskrá átaksins, auk þess sem auglýsing Bleiku slaufunnar verður frumsýnd. Aðgangseyrir er 7.250 krónur. Innifalið í aðgangseyri er miði á leikverkið „Til hamingju með að vera mannleg“ og Bleiku slaufuna 2023.

Sigríður Soffía - Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar

Sérstök hátíðarsýning verður á leikverkinu „Til hamingju með að vera mannleg“ - Ástarjátningu til lífsins - ljóð, leikur, söngur, grín og dans! Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd á liðnu vori, hlaut afar lofsamlega umfjöllun og þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna. Hún byggir á ljóðabók Sigríðar Soffíu Níelsdóttur sem hún samdi þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Verkið fjallar um þrautseigju, andlegan styrk og samfélag kvenna sem standa hver með annarri. Eitt meginþema Bleiku slaufunnar í ár er einmitt samstaða og máttur hennar.

Sjáumst í Þjóðleikhúsinu þann 28. september.

Til hamingju með að vera mannleg