Beint í efni

Hvern­ig verð­ur þitt fram­lag að gagni?

Til að ná árangri gegn krabbameinum þarf að nálgast verkefnið frá öllum hliðum, sem endurspeglast í starfsemi Krabbameinsfélagsins: fræðslu og forvörnum, ókeypis ráðgjöf og stuðningi, rannsóknum og skráningu auk Vísindasjóðs. Félagið á íbúðir í Reykjavík fyrir fólk utan af landi sem sækir rannsóknir eða meðferð í Reykjavík. 

Starfsemi Krabbameinsfélagsins hefur notið stuðnings og styrkja almennings allt frá upphafi, eða í rúm 70 ár. Skuldbinding félagsins við fólkið í landinu er mikil. Starf félagsins er rekið án opinberra styrkja og fjármagnað 95% með styrktarfé. Mánaðarlegir styrktaraðilar leggja mest til starfseminnar auk árvekni- og fjáröflunarátakanna Bleiku slaufunnar og Mottumars. Í nýju verkefni, Styrkleikunum, gefst fólki tækifæri til að sýna samhug og stuðning í verki.

Til að ná árangri gegn krabbameinum þarf að nálgast verkefnið frá öllum hliðum, sem endurspeglast í starfsemi Krabbameinsfélagsins: fræðslu og forvörnum, ókeypis ráðgjöf og stuðningi, rannsóknum og skráningu auk Vísindasjóðs. Félagið á íbúðir í Reykjavík fyrir fólk utan af landi sem sækir rannsóknir eða meðferð í Reykjavík.

Markmið félagsins eru skýr og öll starfsemin miðar að því að fækka þeim sem veikjast af krabbameinum, fjölga þeim sem lifa af og að bæta líf þeirra sem fá krabbamein og aðstandenda þeirra.

hringmynd-sept-2023-3

Fræðslu- og forvarnastarf – 15%

Áhættuþættir krabbameina og lífsstíll sem dregur úr áhættu (sólarvarnir, hreyfing, mataræði, þátttaka í skimunum)

Einkenni krabbameina

Leiðir til að draga úr afleiðingum krabbameina og meðferðar

Fyrirlestrar, námskeið, málþing, ráðstefnur

Prentað og rafrænt efni, veggspjöld, myndbönd, forvarnaleikir á samfélagsmiðlum

Reglubundnar kannanir á þekkingu almennings

Ókeypis ráðgjöf og stuðningur fagfólks og sjálfboðaliða við fólk með krabbamein og aðstandendur þess – 42%

Krabbamein er ein stærsta áskorun fólks í lífinu sem krefst þess að fólk læri að fóta sig í nýjum aðstæðum

Getur valdið streitu, sterkum tilfinningum og valdið fjárhagslegu óöryggi

Ráðgjöf sjö fagaðila, sálfræðinga, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðinga (einnig á ensku og pólsku) fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki og skóla býðst í Reykjavík, á Akureyri, á Egilsstöðum, Selfossi og í fjarþjónustu

Námskeið, fyrirlestrar, málþing, ráðstefnur, líka í streymi ef mögulegt er

Fræðsla á heimasíðum og samfélagsmiðlum

Rannsóknir og skráning – 33%

Til að ná árangri þarf að þekkja viðfangsefnið

Íslensk krabbameinsskrá, rekin fyrir Embætti landlæknis, gegnir lykilhlutverki í krabbameinsrannsóknum hér á landi

Í gæðaskrá er safnað og unnið úr gögnum sem nýtast til að meta gæði krabbameinsþjónustu og árangur

Fjölbreyttar rannsóknir á eðli og orsökum krabbameina, bæði innlendar og alþjóðlegar

Fylgst með árangri með samanburði við önnur lönd

Birting vísindagreina, yfirlitstölfræði, hagnýtar samantektir

Vísindasjóður – 5%

Stofnaður 2015 til að efla íslenskar krabbameinsrannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferðum og lífsgæðum sjúklinga

Bylting í krabbameinsrannsóknum á Íslandi við stofnun

Stofnframlag var 250 milljónir. Viðbótarframlag Krabbameinsfélagsins 229 milljónir króna frá stofnun

Krabbameinsfélagið styrkti sjóðinn um 40 milljónir króna árið 2022

Vísindasjóðurinn hefur úthlutað 455,5 milljónum króna til 47 rannsókna frá árinu 2017

Rekstur – 5%

Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að fækka þeim sem veikjast af krabbameinum, fjölga þeim sem lifa af og bæta líf þeirra sem fá krabbamein og aðstandenda þeirra

Yfirbygging félagsins er lítil

Stjórn félagsins, stjórn Vísindasjóðs og Vísindaráð starfar í sjálfboðavinnu

Starfsmenn félagsins eru 32

Félagið beitir sér í hagsmunagæslu fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur, t.d. varðandi aðstöðu og réttindi

Aðildarfélög Krabbameinsfélagsins eru 27, svæðafélög og félög sem tengjast ákveðnum krabbameinum eða aldurshópum

Hvar er Krabbameinsfélagið?

  • Í Skógarhlíð 8 í Reykjavík
  • Á Glerárgötu 32 á Akureyri
  • Í Reykjanesbæ, á Ísafirði, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi reka aðildarfélög þjónustuskrifstofur með styrk frá Krabbameinsfélaginu. Framför og Kraftur reka þjónustuskrifstofur í Reykjavík
  • Regluleg ráðgjöf á Egilsstöðum og Selfossi

Heimasíður: Krabbameinsfélagið, Bleika slaufan, Mottumars, Karlaklefinn og Styrkleikarnir

Facebook-síður: Krabbameinsfélagið, Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins, Bleika slaufan, Mottumars, Karlaklefinn og Styrkleikarnir

Instagram-síður: Krabbameinsfélagið, Bleika slaufan og Mottumars.

Hlaðvarpsveita: Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélagið gegnir mjög mikilvægu starfi í samfélaginu og nauðsynlegt er að starfið geti haldið áfram þótt brestur verði í fjáröflunum, t.d. vegna þrenginga í samfélaginu. Til þess á félagið varasjóð sem á að geta staðið undir rekstrinum í eitt ár. Sjóðurinn gefur félaginu einnig afl til að takast á við stór verkefni eins og þegar félagið bauð stjórnvöldum að styrkja byggingu nýrrar dagdeildar á Landspítala árið 2021.

Risastórar áskoranir eru framundan og Krabbameinsfélagið er farið að undirbúa sig fyrir þær. Spár benda til að krabbameinstilvikum fjölgi um 52% fram til ársins 2040 og verði þá um 2.800 á ári en eru u.þ.b. 1.800 í dag. Sem betur fer lifa sífellt fleiri af krabbamein og því er spáð að lifendur verði árið 2035 um 26.000 en eru nú um 17.500. Tryggja þarf að þjónusta við allt þetta fólk og aðstandendur, á öllum stigum, verði eins og best verður á kosið og árangur á Íslandi gegn krabbameinum eins og best gerist í heiminum.