Beint í efni

Sjálf­boða­liðar

Sjálfboðaliðar mynda frábær teymi við að skapa einstaka upplifun. 

Styrkleikarnir væru ekki til án sjálfboðaliða sem bera uppi starfið við undirbúning og framkvæmd viðburðarins. Verkefnin sem þarf að leysa eru fjölbreytt og því geta allir nýtt sýna þekkingu og reynslu fyrir viðburðinn, ásamt því að bæta við sig reynslu ef þess er óskað.

Það þarf margar hendur til að halda Styrkleikana, bæði við undirbúning og ekki síst á viðburðinum sjálfum. Verkefnin sem sjálfboðaliðar taka að sér eru fjölbreytt, við leitum að einstaklingum með fjölbreytta reynslu og bakgrunn. Það eru verkefni fyrir alla, hvort sem fólk er að stíga sín fyrstu skref í undirbúningi viðburða eða býr yfir mikilli reynslu. 

Verkefnum er skipt upp á milli hópa, hópstjórar tryggja svo að allir þættir viðburðarins passi saman svo úr verði einstök upplifun þátttakenda og gesta. 

Sjálfboðaliðar fá stuðning og þjálfun frá starfsfólki Krabbameinsfélags í þeim verkefnum sem unnið er að. Á meðan unnið er að verkefnum fyrir félagið eru allir sjálfboðaliðar tryggðir.

Að vera sjálfboðaliði hjá Krabbameinsfélaginu er kjörið tækifæri til þess að láta gott af sér leiða, vera hluti af frábærum hópi einstaklinga og ná sér í reynslu og þekkingu í leiðinni.