Beint í efni

Ein­kenni

Mikilvægt er að veita athygli þeim merkjum sem líkaminn kann að gefa um að heilsunni sé hætta búin. Viss einkenni geta bent til krabbameins þó að vissulega geti þau einnig verið til marks um meinlausari kvilla.

Nauðsynlegt er að bregðast við einkennum því að ef um er að ræða krabbamein eru mestar líkur á að meðferð beri árangur því fyrr sem hún getur hafist.

Mikilvægt er að leita til heimilislæknis ef eitthvað varðandi útlit líkamans, starfsemi hans eða líðan er öðruvísi en venjulega, án skýrra orsaka og/eða stendur yfir í langan tíma.

Mundu!

Þrátt fyrir einkenni er ekki víst að um krabbamein sé að ræða.

Næstum öll einkenni sem krabbamein geta haft í för með sér geta einnig verið til marks um ýmislegt annað. Mikilvægt er þó að fá úr því skorið hjá lækni.

Byggt á efni frá: